Fasteignaleitin
Skráð 25. feb. 2025
Deila eign
Deila

Bæjarholt 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
108.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.900.000 kr.
Fermetraverð
670.653 kr./m2
Fasteignamat
66.000.000 kr.
Brunabótamat
55.300.000 kr.
Mynd af Bergþóra Lárusdóttir
Bergþóra Lárusdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1993
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2074208
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Ný rafmagnstafla
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Þarf að skipta um glugga í stofu
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðurverönd
Lóð
5,99
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Þarf að skipta um glugga í stofu sem snúa að sólpalli.
Domusnova fasteignasala og Bergþóra Lárusdóttir lgf. kynna sérlega fallega, vel skipulagða og mikið endurnýjaða 108,7 fm. 4ra herb. íbúð á 1.hæð með sérmerktu bílastæði, stórri skjólgóðir suðurverönd og fallegu útsýni. Eignin er skráð 3.herbergja en búið að breyta skipulagi og bæta við auka herbergi. Gólfefni á alrými og svefnherbergjum er harðparket frá Birgisson. Baðherbergi og þvottahús eru flísalögð.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og geymslu.
Nánari lýsing:

Forstofa: Er með góðum fataskáp.
Eldhús: Falleg eldhúsinnrétting með ljósri borðplötu, ofni, örbylgjuofni, span hellu og innbyggðri uppþvottavél frá AEG.
Stofa: Er í opnin og björt með eldhúsi. Frá stofu er gengið út á stóran og skjólgóðan suður pall með tengi fyrir heitum potti.
Herbergi I: Rúmgott herbergi með góðu skápaplássi.
Herbergi II: Gott barnaherbergi.
Herbergi III: Er gott aukaherbergi sem var útbúið við breytingar á eigninni.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með baðkari, nýlegum vaskabekk og innréttingu.
Þvottahús: Ljós og rúmgóð innrétting, þvottavél og þurrkari í vinnuhæð, ljós gráleit borðplata og gráleitar flísar á gólfi.
Geymsla: Í sameign er 5,3 fm. sér geymsla.
Hjóla- og vagnageymsla: Er í sameign.
Bílastæði: Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði fyrir utan húsið.

Framkvæmdir árið 2020-2021:
- Nýtt gólfefni (harðparket frá Birgisson), flísar í þvottahúsi (Múrbúðin).
- Skipt um hurðar (Parka).
- Ný innrétting í þvottahús (Ikea).
- Ný eldhúsinnrétting frá Ikea. AEG ofn, uppþvottavél, spanhella og örbylgjuofn (Ormsson).
- Nýr fataskápur í svefnherbergi og forstofu. Nýr baðherbergisvaskur og innrétting (Ikea).
- Ný rafmagnstafla.
- Nýr sólpallur var gerður árið 2024 með tengingu fyrir heitan pott.

Um er að ræða fallega og vel skipulagða eign í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem bæði leik- og grunnskóli eru í göngufæri. 

Nánari upplýsingar veita:
Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / bergthora@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/12/201938.700.000 kr.38.000.000 kr.108.7 m2349.586 kr.
25/06/201219.750.000 kr.19.800.000 kr.108.7 m2182.152 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Breiðvangur 18
Bílskúr
Opið hús:12. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Breiðvangur 18
Breiðvangur 18
220 Hafnarfjörður
142.2 m2
Fjölbýlishús
413
538 þ.kr./m2
76.500.000 kr.
Skoða eignina Breiðvangur 30
Opið hús:12. mars kl 17:00-17:45
Skoða eignina Breiðvangur 30
Breiðvangur 30
220 Hafnarfjörður
107.7 m2
Fjölbýlishús
413
649 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Klapparholt 12
3D Sýn
Skoða eignina Klapparholt 12
Klapparholt 12
220 Hafnarfjörður
112.7 m2
Fjölbýlishús
312
665 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Hvammabraut 14
Opið hús:16. mars kl 16:00-16:30
Skoða eignina Hvammabraut 14
Hvammabraut 14
220 Hafnarfjörður
111.1 m2
Fjölbýlishús
524
665 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin