RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Klapparholt 12, Hafnarfirði íbúð 0202 - Fnr. 207-6944 - Útsýni til sjávar. Klapparholt 12 er rúmgóð og björt 3-4 herbergja íbúð á annari hæð í fjöbýlishúsi með lyftu. Eignin er skráð samkv. Þjóðskrá 112,7 fm og þar af er geymsla í sameign 6,7fm. Fallegt útsýni er yfir fjörðinn og höfnina. Í dag eru tvö svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi sem og þvottahús innan íbúðar og svo geymsla í sameign. Tvennar svalir eru í íbúðinni. Íbúðin er í göngufæri við golfvöll Keilis3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3DFÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Aðkoma: Malbikið bílastæði fyrir framan húsið. Snyrtileg sameign upp að inngangi í íbúðina.
Forstofa: Parket á gólfi. Fataskápur.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útgengt á svalir.
Eldhús: Parket á gólfi. Rúmgóð hvít/viðarinnrétting með flísalögn á milli efri og neðri skápa. Helluborð með viftu yfir. Bakstursofn.
Herbergi: Eru tvö og er parket á gólfum þeirra beggja. Fataskápur er í hjónabergi og það er útgengt á svalir.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar og sturtuklefi. innrétting með efri og neðri skápum. Gluggi er í rýminu.
Þvottahús: Sér þvottahús geymsla er innan með dúk á gólfi og góðum hillum á veggjum.
Svalir: Tvennar svalir sem snúa til norðurs og suðurs.
Geymsla: Sérgeymsla íbúðar á jarðhæð sem er 6,7 fm. Einnig er sameiginleg hjóla og vagnageymsla sem og sameiginleg dekkjageymsla.
Lóð: Ræktuð frágengin lóð.
Klapparholt 12 er einstaklega björt og falleg íbúð með tvennum svölum. Gott húsfélag er starfandi í húsinu. Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.is- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.