Vel skipulögð 65,9 fermetra þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í fallegu húsi í Smáíbúðahverfinu. Íbúðin sjálf er skráð 65,9 fermetrar samkvæmt fasteignaskrá, en eigninni fylgir geymsla í kjallara sem ekki er skráð í fermetratölu eignarinnar. Tvö svefnherbergi, rúmgóðra stofu með mjög skemmtilegum lokuðum svölum, rúmgott eldhús og bað.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs.í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLITKomið er inn í gang eða hol íbúðarinnar, þar sem eldhús er strax til vinstri, baðherbergi þar við hliðina, svo tvö svefnherbergi og björt stofa til hægri í innri enda gangsins. Stofan er ágætlega rúmgóð með stórum lokuðum svölum og björtum gluggum til suðurs að stórum vel hirtum garði.
Eldhús er til vinstri frá gangi, eldri innrétting með viðarborðplötu, sambyggð eldavél og uppþvottavél spara pláss, flísar á gólfi og milli skápa, gluggi til norðurs að bílastæði. Baðherbergi er með baðkari, inréttingu, stórum glugga að bílastæði, flísalagt að hálfu leiti með upprunalegum flísum.
Svefnherbergin eru tvö, minna herbergið ágætt barnaherbergi og hjónaherbergið stórt með fataskáp á heilum vegg.
Íbúðin er vel hönnuð, björt og vel nýtt. Góð geymsla er í kjallara, ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu og þvottahúsi.
Parket er á stofu, herbergjum og gangi. Dúkur á baði, flísar á eldhúsi.
Að söng seljanda hafa skolplagnir undir húsinu verið endurnýjaðar út í brunn auk eins niðurfallsstamma; raflagnir í íbúð hafa verið yfirfarnar og endurnýjaðar eftir þörfum, þar á meðal allir tenglar og rofar auk nýrra öryggja, nýrra lekastraumsrofa og jarðvíra; þakrennur hafa verið endurnýjaðar.
Vel hönnuð íbúð á frábærum stað í Smáíbúðahverfinu.Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is