eignin er seld með hefðbundnum fyrirvörum
R
E/MAX / Erling Proppé & Ágúst Ingi Davíðsson kynna fallega tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngang í tvíbýlishúsi við Hæðargarð.
Nánari upplýsingar veita:
Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.is
Ágúst Ingi Davíðsson lgf. // 787-8817 // agust@remax.isEignin: skiptist í forstofu, miðrými, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og stofu.Forstofa: Er flísalögð með fatahengi
Eldhús: Er með fallegri hvítri innréttingu og tveimur gluggum.
Baðherbergi: Flísalagt hólf í gólf með vegghengdu salerni, góðri innéttingu, walk in sturtu og glugga.
Herbergi: Er mjög rúmgott með góðum skápum.
Stofa: Er mjög rúmgóð, er í dag nýtt sem svefnherbergi. Fordæmi eru fyrir því í hverfinu að opna hér út í garð og gera sólpall.
Þvottahús/geymsla: Er inn af forstofu og deilist með íbúðinni á hæðinni fyrir ofan.
Garðurinn er í óskiptri sameign með efri hæðinni.
Eignin hefur fengið viðhald sl. ár: Skipt var um eldhúsinnréttingu, tæki og gólfefni á undanförnum árum.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað á undanförnum árum.
Skipt um þakið og settir kvistar ca. 2009.
Húsið málað ca. 2022.
Skipt um tvenna glugga í íbúðinni 2024.
Ný rafmagnstafla sett í sameignina og þvottahús tekið í gegn á sl. árum.
Nýtt skolp inn í íbúð og settur nýr brunnur í lóð ca. 2015
ATH. Myndir af stofu og svefnherbergi hafa verið innréttaðar með 3D húsgögnum, eignin var í leigu og er tóm. Myndirnar eru því einungis til að gefa hugmynd af útlit. Falleg eign á góðum stað nálægt allri helstu þjónustu og Fossvogurinn steinsnar frá.Nánari upplýsingar veita:
Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.is
Ágúst Ingi Davíðsson lgf. // 787-8817 // agust@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.