Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herbergja íbúð á 1. hæð að Álftamýri 18 í Reykjavík. Svalir eru til suðurs út frá stofu. Húseignin er vel miðsvæðis og við stofnbraut. Göngufæri er í Álftamýraskóla, íþróttarsvæði og ýmsar verslanir og þjónustu. Í götunni eru einnig rafmagnshleðslustöðvar. Frábær staðsetning. Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og geymslu. Þvottahús og hjóla- og vagnageymsla er í sameign. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 75 m2. **HÉR GETUR ÞÚ SKOÐAÐ 3D AF EIGNINNI. KÍKTU Í HEIMSÓKN MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR!*SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA Í SKOÐUN ÞRIÐJUD. 10. JÚNÍ! Söluyfirlit má nálgast hérNánari lýsing:
Forstofa er inn af sameiginlegum stigagangi. Snjóbræðsa er í stétt fyrir utan. Eingöngu er gengið upp einn stigapall. Innan íbúðar er fatahengi. Parket á gólfi.
Baðherbergi er inn af forstofuholi og er flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni, hvítur handklæðaofn og baðkar með sturtu. Handlaug og veggfest ljós. Opnanlegur gluggi.
Herbergi I er minna herbergið og staðsett milli eldhúss og baðherbergis. Fataslá. Parket á gólfi.
Herbergi II er mjög rúmgott með glugga út í garð til suðurs. Parket á gólfi.
Eldhús er með innréttingu á þremur veggjum. Milli efri og neðri skápa eru flísar. Gott pláss fyrir eldhúsborð og stóla. Parket á gólfi.
Stofa er björt með gluggum til suðurs og þar er útgengi út á svalir. Parket á gólfi stofu.
Geymsla er sér í sameign í kjallara. Merkt 00-09. Birt stærð 7 m2. Opnanlegur gluggi og rafmagnstengill.
Þvottahús og þurrkherbergi er í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara.
Eignarhlutur íbúðar í Álftamýri 16-20 er 3,30%
Eignarhlutur íbúðar í Álftamýri 18 er 13,85%
Endurbætur að sögn eiganda:2018: Þakjárn endurnýjað og skorsteinn fjarlægður
2017: Ný hellulögn með snjóbræðslu fyrir framan húsið
2015: Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð
2013: Húsið var múrviðgert og málað að utan auk endurnýjunar glugga í sameign
2013: Skólplögn fóðruð, drenað og skipt um öll niðurföll í sameiginlegum rýmum
Skipt hefur verið um ofna í íbúð.
Fyrirhugað fasteignamat eignar árið 2026: 59.350.000 kr.
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-