RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Hvammabraut 8 , íbúð 0301 fnr. 207-6322Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 126,6 fm og þar af er geymsla í kjallara 5,1 fm og íbúðarhlutinn er skráður 121,5 fm. Aðalhæð er skráð 82 fm og rishæð 39,5 fm. Skráð byggingarár hússins er 1985. Húsið er 3. hæða og er íbúðin á efstu hæð.
3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3DFÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:
Aðkoma: Malbikað bílaplan fyrir framan húsið.
Aðalhæð:Anddyri: Komið er inn í flísalagt anddyri.
Stofa og borðstofa: Samliggjandi stofa og borðstofa með gluggum og útgengi út á rúmgóðar svalir. Mikið útsýni til suðurs úr stofu og af svölum. Parket á gólfi.
Eldhús: Flísar á gólfi. Stór hvít innrétting. Bakstursofn í vinnuhæð. Helluborð með viftu yfir. Eldhúsið var endurnýjað 2017.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi eru á neðri hæð og er parket á gólfum þeirra beggja. Stór fataskápur er í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni. Góð sturta með glerþili. Góður neðri skápur með handlaug. Handklæðaofn.
Efri hæð: Hringstigi er upp á efri hæðina sem er að hluta til undir súð.
Hol / sjónvarpsherbergi: Rúmgott sjónvarpshol er á efri hæð. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Eru tvö og er parket á gólfi þeirra beggja. Þakgluggar eru í báðum herbergjunum.
Geymslur: Sér 5,1 fm geymsla í sameignarhluta. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús í sameign.
Bílageymsla: Í kjallara er bílageymsla opin öllum en stæðin eru ómerkt. Einnig er fjöldi bílastæða fyrir utan húsið.
Hvammabraut 8 er björt fimm herbergja íbúð með fallegu útsýni. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, stofu/borðstofu, fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi og geymslu. Núverandi eigendur keyptu eignina 2021 og hafa framkvæmt töluvert síðan. Skipt var um ofna 2021 í eldhúsi og báðum svefnherbergjum aðalhæðar. Baðherbergi var allt endurnýjað. Lagt parket með góðu undirlagi.
Einstaklega vel staðsett eign, göngufæri við grunnskóla, leikskóla, framhaldsskóla og almenna þjónustu.
Gerð var ástandsskýrsla um Hvammabraut 2-16 árið 2018 og hefur verið unnið markvisst að endurbótum á húsinu eftir þá skýrslu og er því að mestu lokið í bili. Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.