FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR: LAUST VIÐ KAUPSAMNING: MIKIÐ ENDURNÝJAÐ OG FJÖLSKYLDUVÆNT 281,9 FM PARHÚS Á FRÁBÆRUM ÚTSÝNISSTAÐ Í BOTNLANGAGÖTU VIÐ NORÐURBRÚN 22 Í 104 REYKJAVÍK. AUKA-STÚDÍÓÍBÚÐ MEÐ SÉRINNGANGI Á JARÐHÆÐ OG MÖGULEIKI Á AÐ ÚTBÚA AÐRA ÍBÚÐ. Á efri hæð er mjög stórt eldhús með mögnuðu útsýni, 3 svefnherbergi, baðherbergi, stofa, borðstofa og lokuð sólstofa. Flott eikarparket á gólfum. Fallegur gróinn bakgarður. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
Nánari lýsing:
Húsið er byggt 1968 og er parhús á tveimur hæðum og hefur verið mikið endurnýjað á sl. ári, svo sem þak , gluggar og gler og gluggi í kjallara stækkaður, ný hurð og steyptar tröppur garðmegin í kjallara, nýjar rafmagnstöflur og nýtt rafmagn dregið á efri hæð og sett innfelld lýsing og húsið allt málað að utan sem innan. Þá hefur eldhús og baðherbergi verið endurnýjað, sólstofu lokað með nýjum gluggum og nýtt viðar plankaparket lagt á flest gólf.
Neðri hæð: Þar er forstofa, hol, stúdíóíbúð með sérinngangi, stórt herbergi (og tvö önnur rými sem nýta mætti sem eldhús og bað fyrir aðra aukaíbúð), geymsla og bílskúr. Fallegur viðarstigi með stálramma milli hæða.
Forstofa: Með flísum á gólfi.
Hol: Rúmgott með stálstiga með viðarþrepum upp á efri hæð.
Aukaíbúð: Stúdíóbúð með nýrri eldhúsinnréttingu og parketi á gólfi. Baðherbergi flísalagt með sturtu. Sérinngangur.
Herbergi: Stórt herbergi með þremur litlum gluggum sem snúa út í garð. Innaf herberginu eru 2 aukarými sem mætti tengja og gera að annarri aukaíbúð. Útgengi út í garð.
Bílskúr/geymsla: Rúmgóður bílskúr með rafdrifinni bílskúrshurð og inn af honum geymsla.
Efri hæð: Þar er eldhús, stofa, borðstofa, sólstofa, svefnherbergisgangur, 3 svefnherbergi og baðherbergi. Innfelld lýsing í loftum og parket á öllum gólfum nema í eldhúsi og á baði, þar sem eru flísar.
Eldhús: Glænýtt, rúmgott og glæsilegt eldhús með mögnuðu útsýni yfir sundin og að Esjunni. Hvítar háglans innréttingar og nægt rými fyrir eldhúsborð. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa/sólstofa: Sameiginlegt rými en stórir gluggar milli stofu og sólstofu.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtu, upphengdu salerni og innréttingu við vask.
Svefnherbergi: 3 svefnherbergi eru á hæðinni.
Garður: Fallegur gróinn bakgarður í suður.
Virkilega fallegt, fjölskylduvænt og mikið endurnýjað parhús á frábærum stað í Reykjavík. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.