Trausti fasteignasala og Halldór Frímannsson lgf. kynna til sölu eignina Rauðagerði 64, 108 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 203-5551 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindi.
Rauðagerði 64 er einstaklega fallegt tveggja íbúða hús með vönduðum innréttingum. Tvær íbúðir eru í húsinu, bílskúr ásamt stóru rými sem hægt væri að breyta í íbúð. Íbúð á hæð er 4ra herbergja, íbúð á jarðhæð er 2ja herbergja með sérinngangi. 507 fm lóð með skjólgóðum gróðri. Eignin er á einu fastanúmeri.
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá 280,8 fm.
Nánari lýsing fyrir íbúð á hæð, skráð stærð 140,4 fm
Gólfefni: Forstofa og bað eru flísalögð, eldhús, boðstofa, hol, gangur og herbergi eru parketlögð, teppi á stofu og flísar kringum arinn, epoxy á vaskahúsi.
Forstofa: Með stórum fataskáp.
Hol: Með setukrók sem er afstúkaður með viðarskilrúmi frá herbergisgangi.
Stofa: Rúmgóð stofa með arin, útgengt á stórar svalir sem snúa í suðvestur.
Borðstofa: Innaf stofu og við hliðina á eldhúsinu er borðstofa, sem er stúkuð af með viðarskilrúmi frá stofu. Á milli borðstofu og eldhúss er innbyggð rennihurð.
Eldhús: Með viðarinnréttingu, efri og neðri skápum og borðkrók.
Herbergi 1 og 2: Herbergin eru hlið við hlið innaf forstofu vestan megin í húsinu.
Baðherbergi: Viðarinnrétting með efri og neðri skápum, ljós borðplata með tveimur vöskum, baðkar og opnanlegur gluggi. Veggir flísalagðir upp að innréttingu.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataskáp.
Sjónvarpshol: Innst í alrými ásamt gangi og setustofu er sjónvarpshol. Útgengt á svalir.
Vaskahús: Í endanum á herbergisgangi er stórt vaskahús með epoxy gólfefni.
Annað: Innihurðir eru frá JP innréttingum, skilrúm í stofu frá Árfellsskilrúm og eldhús- og baðinnréttingar sérsmíðaðar.
Nánari lýsing íbúð á jarðhæð, skráð stærð 58 fm:
Forstofa/hol: Gengið inn í flísalagt hol með fatahengi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu, efri skáp, opnanlegur gluggi.
Eldhús: Rúmgott með nýrri innréttingu, borðkrók.
Hjónaherbergi: Með fataskáp.
Stofa: Rúmgóð með gluggum meðfram suðurhlið
Vaskahús: Með flísalögðu gólfi, tengingum fyrir þvottavél, niðurfall í gólfi, opnanlegur gluggi.
Annað: Íbúðin er nýstandsett með nýrri IKEA eldhúsinnréttingu, nýju gólfefni og gólflistum, flísum á holi og nýmáluð.
Nánari lýsing bílskúr og alrými á jarðhæð:
Bílskúr ásamt alrými á jaðhæð er 82,4 fm. Opna rýmið er stúkað af að hluta í geymslur, vinnurými og WC aðstöðu með léttum veggjum.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Frímannsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6605312, tölvupóstur halldor@trausti.is.