Fasteignaleitin
Skráð 12. sept. 2024
Deila eign
Deila

Hryggjarsel 11

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
326.7 m2
13 Herb.
9 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
167.900.000 kr.
Fermetraverð
513.927 kr./m2
Fasteignamat
137.750.000 kr.
Brunabótamat
138.850.000 kr.
Mynd af Elín Rósa Guðlaugsdóttir
Elín Rósa Guðlaugsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1980
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2056011
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Í lagi
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Í lagi
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Sérhiti
Inngangur
Margir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala kynnir: Hryggjarsel 11, 109 Reykjavík. 3ja hæða raðhús með aukaíbúð í kjallara og í bílskúr. Eignin er skráð 326.7 fm en þar af er íbúð í kjallara 88 fm og bílskúr 54.6 fm. Í dag eru 4 herbergi í aðalíbúð en skv. teikningu eru þau 5. 

Eignin Hryggjarsel 11 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 205-6011, birt stærð 326,7 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Bókið skoðun hjá; Elín Rósa Guðlaugsdóttir í síma 773-7126, eða elinrosa@gimli.is

NÁNARI LÝSING:
Aðkomuhæð skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, eldhús, stofu/borðstofu, sjónvarpsherbergi, herbergi/skrifstofu.

Forstofa: flísar á gólfi og gott skápapláss og skóskápur.
Gestasnyrting: flísar á gólfi, vaskur í innréttingu og gluggi.
Eldhús: endurnýjað 2018, grá og svarbrún innrétting og kvarz steinn á borðum. Opinn tækjaskápur, mjög gott skápapláss, búrskápur og innri skúffur. Uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur fylgja. Hiti í gólfi. Gluggar.
Stofa/borðstofa: L-laga og er í opnu rými með eldhúsi. Rúmgóðar stofur, möguleiki á að setja upp arinn.
Sjónvarpsherbergi: inn af stofu, gengið niður um 2 þrep. Útgengi á austur svalir. Upptekið loft, hægt að nýta sem herbergi.
Herbergi/skrifstofa: inn af eldhúsi, skrifborð og veggskápar.
Efri hæð skiptist í 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og hol.
Hol: úr holi er gengið inn í allar vistarverur efri hæðar. Línskápur.
Herbergi #1: ágætt hjónaherbergi með góðu skápaplássi, útg. á svalir. 
Herbergi #2: voru áður 2 herbergi, lítið mál að breyta aftur, þrefaldur skápur.
Herbergi #3: ágætt barnaherbergi, tvöfaldur skápur.
Baðherbergi: flísar á gólfum og veggjum. Sturtuklefi og baðkar, rúmgóð innrétting og gott skápapláss. Bjart og með góðum gluggum (upprunalegt).
Þvottahús: nýleg innrétting undir tækjum og gert ráð fyrir að tæki séu í vinnuhæð. Dúkur á gólfi. Aðgengi að loftrými hússins.
Nýir skápar í herbergjum sem og holi.
Gólfefni í aðalíbúð er nýlegt harðparket, nema annað komi fram.
Nýl. járnstigi á milli hæða.
Jarðhæð skiptist í 3ja herbergja íbúð með sérinngangi og garði, geymslu og inntaksrými. Geymsla og inntaksrými eru óskráð.

Forstofa: náttúruflísar á gólfi.
Eldhús: L-laga birkiinnrétting, efri skápar. Grá borðplata. Uppþvottavél fylgir.
Stofa/borðstofa: í opnu rými með eldhúsi. Útgengi í garð.
Herbergi #1: við forstofu.
Herbergi #2: ágætt herbergi með góðu skápaplássi.
Baðherbergi: mjög rúmgott baðherbergi með sturtu, speglaskápur. Flísar á gólfi.
Þvottahús: inn af baðherbergi, mjög rúmgott, málað gólf.
Geymsla: innan íbúðar, málað gólf (í rýminu var áður stigi á milli hæða)
Garður: búið að jarðvegsskipta.
Gólfefni í íbúð er parket, nema annað komi fram. Íbúð verður máluð fyrir afhendingu.
Geymsla: köld geymsla sem fylgir aðalíbúð, óskráð í fm. Hillur.
Inntaksrými: nýtanlegt sem upphitað geymslurými að hluta.
Bílskúr skiptist í 3ja herbergja íbúð, geymsluloft og kalda geymslu.
Forstofa: dúkur á gólfi. 
Eldhús: dökk innrétting, eldavél og veggháfur. Efri skápar. Innbyggð uppþvottavél. Tengi fyrir þvottavél í útskoti og g.r.f. ísskáp fyrir ofan þvottavél.
Stofa/borðstofa: ágætt rými og góðir gluggar.
Herbergi #1 og #2: ágæt herbergi.
Baðherbergi: dúkur á gólfi, sturta, innrétting með vaski, veggskápur. Fibo plötur á veggjum.
Geymsluloft: rúmgott geymsluloft (óskráð) yfir hluta af stofu og forstofu.
Mjög góð lofthæð.
Gólfefni í íbúð er harðparket, nema annað komi fram.

Fallegur aflokaður garður með annars vegar timburpalli og hins vegar hellulagðri verönd. Geymsluskúr fylgir.

Húsið hefur fengið gott viðhald og skipt hefur verið um gler í stærstum hluta aðalhúss 2023, nýr þakkantur 2024, þak málað 2022, ný útiljós 2024. Flest allir ofnar hafa verið endurnýjaðir, rafmagnstenglum fjölgað í herbergjum.

Niðurlag: frábært fjölskylduhús með góðum útleigu-/nýtingarmöguleikum. Vel staðsett innan hverfis þar sem leik- og grunnskólar eru í göngufæri. 

Nánari upplýsingar veitir: Elín Rósa Guðlaugsdóttir í síma 773-7126, eða elinrosa@gimli.is

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1982
54.6 m2
Fasteignanúmer
2056011
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.500.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grjótasel 10
Skoða eignina Grjótasel 10
Grjótasel 10
109 Reykjavík
319.6 m2
Parhús
835
484 þ.kr./m2
154.600.000 kr.
Skoða eignina Dynskógar 3
Skoða eignina Dynskógar 3
Dynskógar 3
109 Reykjavík
287.6 m2
Einbýlishús
926
589 þ.kr./m2
169.500.000 kr.
Skoða eignina Miðhús 42
Skoða eignina Miðhús 42
Miðhús 42
112 Reykjavík
271.3 m2
Einbýlishús
624
589 þ.kr./m2
159.700.000 kr.
Skoða eignina Neðstaberg 2
Bílskúr
Skoða eignina Neðstaberg 2
Neðstaberg 2
111 Reykjavík
305.1 m2
Einbýlishús
834
511 þ.kr./m2
155.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin