** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun- Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali steingrimur@fastmos.is **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel staðsett 319,6 m2 tengihús með bílskúr og aukaíbúð. Möguleiki er á að útbúa aðra aukaíbúð í eigninni. Timburverönd með heitum potti. Um er að ræða mjög gott fjölskylduhús á frábærum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Heimilt er að byggja glerskála yfir svalir.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:
Aðalíbúð:Forstofa með flísum á gólfi.
Eldhús með sérsmíðaðri viðar innréttingu frá Axis. Gott skápa- og vinnupláss. Borðkrókur er í eldhúsi. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi er með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með sérsmíðaðri innréttingu frá Axis. Á baði er vegghengt salerni, baðkar og sturtuaðstaða. Flísar á gólfi og að hluta til veggjum.
Þvottahús er inn af forstofu.
Efri hæð er stórt og bjart rými en þar er góð
borðstofa.
sjónvarpsstofa og
setustofa. Úr rýminu er útgegnt á stórar
þaksvalir með fallegu útsýni.
Neðri pallur er rými með parketi á gólfi. Hægt að nýta á nokkra vegu
Neðri hæð (hægt er að loka á milli íbúðar og gera að íbúð með sérinngangi):
Forstofa með fatahengi.
Alrými er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með innréttingu, salerni og sturtuklefa. Flísar á gólfi.
Geymsla er á hæðinni sem notuð er í dag sem vinnuherbergi.
Aukaíbúð:
Eldhús með hvítri innréttingu. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta. Flísar á gólfi
Stofa/borðstofa er í opnu og björtu rými með parketi og flísum á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott og inn af því er
fataherbergi.Baðherbergi er með góðri innréttingu, salerni, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi og veggjum.
Bílskúrinn er með tveimur opnanlegum hurðum. Er skráður 45,5 m2, en hluti bílskúrs er nýtt sem íbúðarrými.
Verð. 154.600.000,-