Fasteignaleitin
Skráð 1. ágúst 2024
Deila eign
Deila

Dynskógar 3

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
287.6 m2
9 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
169.500.000 kr.
Fermetraverð
589.360 kr./m2
Fasteignamat
125.600.000 kr.
Brunabótamat
106.950.000 kr.
Mynd af Elín Viðarsdóttir
Elín Viðarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1976
Þvottahús
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2055034
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
sagt í lagi
Raflagnir
sagt í lagi
Frárennslislagnir
sagt í lagi
Gluggar / Gler
sagt í lagi
Þak
sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
SV svalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Framkvæmdalist yfir það sem hefur verið gert frá 2011-2024 skv. seljendum
2011     Ný eldhúsinnrétting og flísar á gólfið.
2011     Skolplagnir myndaðar og talið í lagi.
2011     Skiptum stóra barnaherberginu í tvö minni herbergi eins og kemur fram á upprunalegri teikningu. Breyttum því aftur í stórt herbergi 2020.
(Hurðirnar voru úr Parka ef einhver vill breyta aftur í tvö minni).
2011     Létum slípa parketið og lakka.
2012     Hús múrviðgert og málað.
2014     Sér íbúð á jarðhæð algerlega gerð upp með aðgangi út í garðinn, nýtt rafmagn, pípulagnir, ofnar, nýjar innréttingar og gólfefni.
2016     Þak viðgert, skipt um járn og þakkantur endurnýjaður.E
2018     Baðherbergi neðri hæðar í aðalíbúð endurnýjað.
2020     Barnaherbergi efri hæð sameinuð í eitt mjög stórt herbergi.
2020     Bílskúr breytt í fullbúna íbúð. Raflagnir og allt annað nýtt þar.
2020     Skipt um gler við útidyrahurð framan á húsinu.
2022     Skipt um flesta ofna í aðalíbúð hússins.
2022     Svalir klæddar með lerki og lituðu formbeygðu áli.
2022     Settur upp tréveggur í bakgarði hússins.
2024     Stétt við aðalinngang múruð og hús málað að framanverðu.
 
Að öðru leiti hefðbundið viðhald í gegn um árin.
Gallar
Parket orðið slitið í aðalíbúð
Komið er samþykkt tilboð í eignina sem nú er í fjármögnunarferli 

"Tvær aukaíbúðir - Góðar leigutekjur - 5 svefnherbergja aðalíbúð"


Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905 og Valhöll fasteignasala kynna í einkasölu Dynskóga 3, 109 Reykjavík.
Um er að ræða g
læsilegt einbýlishús á tveimur hæðum á vinsælum stað í botnlangagötu í  hverfi 109 Reykjavík.
SELJENDUR SKOÐA SKIPTI Á MINNI EIGN.


Eignin er skráð 240,2 fm á stærð sem skiptast í 213,1 fm hús og 28,0 fm bílskúr sem hefur verið innréttaður sem studíóíbúð. Þá er einnig búið að útbúa 47,4 fm 2ja herbergja íbúð í útgröfnu rými hússins á jarðhæð og er stærð hennar ekki inn í birtum fermetrum. Heildareignin er því í raun um 287,6 fm á stærð.

Húsið nýtist því í 3 íbúðareiningar: 
- Einbýlishús;  5 svefnherbergi og 2 baðherbergi.
- Aukaíbúð; 2ja herbergja og baðherbergi með útgengi út í garð.
- Bílskúr: stúdeóíbúð með baðherbergi.


Nánari lýsing: Myndir raðaðar - Aðalíbúð- aukaíbúð- Bílskúr

Einbýlishúsið (aðalíbúðin) á 2 hæðum:

Neðri hæð: Andyri/gangur, Forstofuherbergi, baðherbergi, þvottahús, gangur að bílskúr/aukaíbúð
Anddyri: Anddyrið er flísalagt og óvenju rúmgott með innbyggðum fataskápum. Af því liggja önnur rými þessa íbúðarhluta.
Forstofuherbergi: Parketlagt, mjög rúmgott og bjart með gluggum á tvo vegu.
Baðherbergi: Flísalagt með upphengdu salerni, vaskinnréttingu, handklæðaofni og "walk inn" sturtu.
Þvottahús: Flísalagt með hvítri innréttingu fyrir vélar og skolvaski. Opnanlegur gluggi.
Gangur að bílskúr/aukaíbúð: Flísalagður. Tengir aðalíbúðina við bílskúrinn annars vegar og aukaíbúðina hins vegar. Liggur af forstofu aukaíbúðarinnar
Efri hæð: Stigapallur/gangur, Stofur, Eldhús/borðstofa, 4 svefnherbergi, baðherbergi.
Stigi:
Gengið er upp fallegan bogadreginn steinsteyptan parketlagðan stiga. Gluggi er á rýminu og gefur góða birtu inn í húsið auk þess sem lofthæðin er góð.
Stigapallur/gangur: Parketlagður stigapallur/gangur, af honum liggja allar aðrar vistarverur hæðarinnar. Í enda gangsins er svo einnig útgengi út í bakgarðinn.
Stofur: Tvöföld parketlögð stofa, rúmgóð og björt stofa með gólfsíðum gluggum og útgengi annars vegar á rúmgóðar svalir og hins vegar út í hellulagðan garð. Einstakt útsýni er úr stofu til suðvesturs.
Eldhús/borðstofa: Opið við stofu. Flísalagt. Mjög rúmgott eldhús með hvítri innréttingu, eyju með eldavél og innréttingum á 2 veggjum. Mjög gott skápapláss. Borðstofan er samliggjandi eldhúsinu og gluggar eftir rýminu endilöngu gefa fallega birtu inn í eldhúsið.
Hjónaherbergi: Parketlagt með skápum á heilum vegg.
Barnaherbergi I: Málað gólf.
Barnaherbergi II og III: Hafa verið sameinuð og eru nú í einu mjög góðu rými. Málað gólf.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og hluta veggja. Upphengt salerni, baðkar, stórum spegli og ljósum skápum. Opnanlegur gluggi er á baði.

Aukaíbúð á jarðhæð: Forstofa/gangur, stofa/eldhús, svefnherbergi og baðherbergi.
Inngangur: Gengið er beint inn um sér inngang á vinstri hlið hússins inn á sameigninlegan flísalagðan gang fyrir þessa íbúð og bílskúr. Einnig innangengt í aðalíbúðina. 
Forstofa/gangur: Parketlagt með fataskáp. Opnast inní aðrar vistarverur íbúðarinnar.
Stofa/Eldhús: Í einu mjög rúmgóðu rými. Eldhúsið er með hvítri innréttingu á heilum vegg, ofn, vifta og helluborð. Útgengi er á hellulagða verönd hússins.
Svefnherbergi: Parketlagt. 
Baðherbergi: með "walk in" sturtu, skápum undir og yfir vask, upphengdu salerni og flísum á gólfi og hluta veggja.

Bílskúr: Anddyri/eldhús/stofa, Baðherbergi, Svefnherbergi.
Inngangur: Gengið inn um sérinngang í bílskúrinn en einnig er hægt að ganga inn um sama inngang og aukaíbúðin hefur á vinstri hlið hússins.
Anddyri/eldhús/stofa: Eitt parket/flísalagt rými með fatahengi, eldhústækjum, vaski og opnum hillum. Aðstöða er fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og hluta veggja, með "walk inn" sturtuklefa, vaskinnréttingu, salerni og glugga.
Svefnherbergi: Parketlagt með góðum glugga og útgengi á sameignilegan gang með aukaíbúð.

Lóðin: Er skráð 844 fm og er að mestu hellulögð að framan og til hliðar við húsið. Töluverður gróður er í baklóðinni og möguleiki til ræktunar.
Hægt er að ganga út í lóðina á amk 4 stöðum úr húsinu og því frábærir nýtingarmöguleikar á henni.
Hitalögn er í bílaplani að framanverðu og svo einnig vinstra megin við húsið. Að aftanverðu er lóðin tyrfð. 

Samantekt: Hér er um að ræða einstaklega rúmgott og vel skipulagt einbýlishús með 2 útleigumöguleikum eða frábært stórfjölskylduhús með stórum garði og útsýni.

Allar nánari upplýsingar veitir  Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905


Framkvæmdalisti yfir það sem hefur verið gert frá 2011-2024 skv. seljendum
2011     Ný eldhúsinnrétting og flísar á gólfið.
2011     Skolplagnir myndaðar og talið í lagi.
2011     Skiptum stóra barnaherberginu í tvö minni herbergi eins og kemur fram á upprunalegri teikningu. Breyttum því aftur í stórt herbergi 2020.
(Hurðirnar voru úr Parka ef einhver vill breyta aftur í tvö minni).
2011     Létum slípa parketið og lakka.
2012     Hús múrviðgert og málað.
2014     Sér íbúð á jarðhæð algerlega gerð upp með aðgangi út í garðinn, nýtt rafmagn, pípulagnir, ofnar, nýjar innréttingar og gólfefni.
2016     Þak viðgert, skipt um járn og þakkantur endurnýjaður.
2018     Baðherbergi neðri hæðar í aðalíbúð endurnýjað.
2020     Barnaherbergi efri hæð sameinuð í eitt mjög stórt herbergi.
2020     Bílskúr breytt í fullbúna íbúð. Raflagnir og allt annað nýtt þar.
2020     Skipt um gler við útidyrahurð framan á húsinu.
2022     Skipt um flesta ofna í aðalíbúð hússins.
2022     Svalir klæddar með lerki og lituðu formbeygðu áli.
2022     Settur upp tréveggur í bakgarði hússins.
2024     Stétt við aðalinngang múruð og hús málað að framanverðu.
 
Að öðru leiti hefðbundið viðhald í gegn um árin.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. VALHÖLL fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati.
Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/11/201041.700.000 kr.47.500.000 kr.240.2 m2197.751 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hryggjarsel 11
Bílskúr
Skoða eignina Hryggjarsel 11
Hryggjarsel 11
109 Reykjavík
326.7 m2
Raðhús
1339
514 þ.kr./m2
167.900.000 kr.
Skoða eignina Grjótasel 10
Skoða eignina Grjótasel 10
Grjótasel 10
109 Reykjavík
319.6 m2
Parhús
835
484 þ.kr./m2
154.600.000 kr.
Skoða eignina Miðhús 42
Skoða eignina Miðhús 42
Miðhús 42
112 Reykjavík
271.3 m2
Einbýlishús
624
589 þ.kr./m2
159.700.000 kr.
Skoða eignina Neðstaberg 2
Bílskúr
Skoða eignina Neðstaberg 2
Neðstaberg 2
111 Reykjavík
305.1 m2
Einbýlishús
834
511 þ.kr./m2
155.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin