Dalsbraut 18 –
íbúð 206, Njarðvík.
Vel skipulögð 4ra herbergja
endaíbúð á 2. hæð við Dalsbraut 18 í Njarðvík. Íbúðin býður upp á
þrjú svefnherbergi, opið rými með stofu, eldhúsi og borðstofu, svalir, merkt bílastæði og sérgeymslu í sameign. Stutt er í nýjan grunnskóla og leikskóla.
Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning!Skráð stærð
89fmHelstu atriði- 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð.
- Þrjú svefnherbergi og opið alrými með stofu, eldhúsi og borðstofu.
- Merkt bílastæði fylgir íbúðinni.
- Sérgeymsla í sameign og tvær hleðslustöðvar við húsið.
Nánari upplýsingar veita:Ómar Hjaltason astmf. S:778-9090 eða omar@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Nánari lýsingVið Dalsbraut 18 er að finna þessa vel skipulögðu
4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð sem hentar vel fjölskyldum og þeim sem vilja þægilegt skipulag á góðum stað í Njarðvík. Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Stofa, eldhús og borðstofa eru í opnu rými með parketi á gólfi og útgengi á svalir.
Eldhúsið er með stílhreinni innréttingu, ofni í vinnuhæð og gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergin eru þrjú, þar af rúmgott
hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum fataskáp, auk tveggja herbergja með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt á gólf og veggi með innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu, auk þess sem aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi. Sérgeymsla fylgir í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Merkt
bílastæði fylgir íbúðinni og tvær hleðslustöðvar eru við fjölbýlishúsið.
Staðsetningin er góð þar sem nýr grunnskóli og leikskóli eru í göngufæri.www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.