DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 3. júlí 2026

Pálsbúð 9

EinbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
228.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
139.500.000 kr.
Fermetraverð
610.503 kr./m2
Fasteignamat
99.350.000 kr.
Brunabótamat
130.800.000 kr.
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2315571
Landnúmer
203739
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunalegar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
upprunalegt
Þak
í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
stór verönd
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Pálsbúð 9, Þorlákshöfn.  Einstaklega glæsilegt 228,5m2 einbýlishús með 4 stórum svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og stórum bílskúr.  Allur frágangur er einstaklega vandaður og er lóðin fullfrágengin með stórglæsilegri, stórri verönd með góðum skjólveggjum með heitum potti og grillskýli !

** Sjón er sögu ríkari ! **

*  Hægt er að bóka einkaskoðun og fá allar nánari upplýsingar á fastsud@gmail.com og í síma 483 3424 **

Eignin telur:

*  Stóra forstofu með flísum á gólfi og stórum, sérsmíðuðum skáp.
*  Stóra, glæsilega stofu með flísum á gólfi og fallegum gluggum sem hleypa góðri birtu inn í rýmið.
*  Úr stofunni er utangengt á glæsilega, skjólgóða verönd með góðum skjólveggjum og grillskýli.
*  Heitur pottur er á veröndinni.
*  Stórglæsilegt eldhús með stórri, sérsmíðaðri innréttingu með stórri eyju með span-helluborði og gufugleypir sem gengur upp úr borðinu.  Tvöfaldur ísskápur fylgir. 
*  Mjög rúmgott sjónvarpshol með harðparketi á gólfi.
*  4 stór svefnherbergi, öll með sérsmíðuðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
*  2 baðherbergi eru í húsinu:
Stærra baðherbergið er með góðri, hvítri innréttingu, sturtu úr glerþili, upphengdu wc og flísum á gólfi og veggjum. Tengi er fyrir baðkar.  
Úr baðherberginu er utangegnt á veröndina að heitum potti.
Á minna baðherberginu eru skúffur undir vask, wc og flísar á gólfi og hluta veggja.

*  Mjög gott þvottahús með hvítri, nýlegri innréttingu og vask. Flísar á gólfi.  Utangengt er í bakgarðinn úr þvottahúsinu. Innangengt er í bílskúrinn úr þvottahúsinu. 

*  Bílskúrinn er 54m2, með 3ja fasa rafmagni og gólf er málað.    Á einfaldan hátt er hægt að útbúa góða geymslu í bílskúrnum. 

*  Bílaplanið er hellulagt og með hita í.  Hellulögð, upphituð gangstétt er nær allt í kringum húsið. 

*  Steyptur lóðargarður er allt í kringum húsið (með steyptum "fót" ) og samþykki er fyrir girðingu, allt að 180cm hárri.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/ 

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Super 1 pizza (facebook:  super 1 pizza)
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is og á www.hamingjuhofn.is
  



 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/03/201619.900.000 kr.19.250.000 kr.228.5 m284.245 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2008
54.2 m2
Fasteignanúmer
2315571
Byggingarefni
timbur
Fasteignasala Suðurlands ehf.
www.eignin.is

Myndir (55)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Norðurgata 17
Skoða eignina Norðurgata 17
Norðurgata 17
800 Selfoss
224.4 m2
Einbýlishús
414
645 þ.kr./m2
144.800.000 kr.
Skoða eignina Þórsmörk 10
Bílskúr
Skoða eignina Þórsmörk 10
Þórsmörk 10
810 Hveragerði
213 m2
Parhús
624
700 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Austurkór 30
Bílskúr
Skoða eignina Austurkór 30
Austurkór 30
203 Kópavogur
247.4 m2
Einbýlishús
725
806 þ.kr./m2
199.500.000 kr.
Skoða eignina Ísleifsbúð 24
Skoða eignina Ísleifsbúð 24
Ísleifsbúð 24
815 Þorlákshöfn
120.1 m2
Raðhús
413
607 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin