DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 18. júní 2025

Austurkór 30

Nýbygging • EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
247.4 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
199.500.000 kr.
Fermetraverð
806.386 kr./m2
Fasteignamat
119.850.000 kr.
Mynd af Sigríður Rut Stanleysdóttir
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Löggiltur fasteignasali
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2329168
Landnúmer
220671
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
tvöfalt gler
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
stórar
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG kynna: Glæsilega hannað einbýlishús með útsýni aukinni lofthæð og  í grónu hverfi.  Aukin lofthæð er á efri hæðin og gott skipulag.  Um er að ræða 247 fm2 einbýlishús og  þar að auki eru um það bil 70 fm2 yfirbyggt svæði sem búið er að leggja hitalagnir í gólf og er það rými  ekki skráð með í heildarfermetrunum. Fallegur frágangur að innan sem utan. Gólfhitakerfi, gert ráð fyrir innfelldri lýsingu,  fljótandi stigaþrep á vegg. Stórir gluggar, mjög rúmgóðar svalir, loftræstikerfi og innfelld blöndunartæki. Rafmagns- og ljósahönnun var unnin af Helga Eiríkssyni í Lumex.  Rafmagns- og vatnsinntök eru komin inn í húsið, dreifikista fyrir heitt og kalt vatn er komin ásamt forhitara fyrir heita vatnið. Rafmagn er full frá gengið með lokaúttekt á rafmagni. Húsið er með Free @ Home hússtjórnunarkerfi frá ABB.  Í dag er húsið skráð á byggingarstig (B2) en eignin er tilbúin til innréttingar að innan. 
Allar nánari veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / helgi@fstorg.is  og  Sigríður Rut Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is


Lýsing neðri hæðar samkvæmt teikningum
Gert er ráð fyrir allt að 3 svefnherbergjum
Góð forstofa og gert ráð fyrir innfelldum fataskápum
Sjónvarpshol
Baðherbergi
Þvottahús
Geymsla
Bílskúr skráður 29,2 fm2 samkvæmt HMS fasteignayfirliti
62,9 fm2 útisvæði sem er ekki skráð inní heildarfermetrunum og með möguleika að sækja um að loka. Búið er að leggja hitalagnir í gólf.

Lýsing efri hæðar samkvæmt teikningum
Eldhús, borðstofa og stofa í rúmgóðu opnu rými með 2 rennihurðum út á svalir sem ná yfir alla suður- og vesturhlið hússins.
Hjónasvíta með möguleika á fataherbergi og innaf er rúmgott baðherbergi.
Vinnuherbergi/svefnherbergi
Gestasnyrting


Eignin verður afhent í eftirfarandi ástandi:
Um er að ræða full uppsteypt hús, sem í dag er skráð á byggingarstig 2 (fokheldi), en er vel rúmlega það, búið að jarðvegsskipta allri lóðinni, grófjafna lóðina og steypa garðveggi beggja megin við húsið.
Ath. Veggur við Austurkór 28 er í eigu Austurkórs 28.
Gert er ráð fyrir að hægt sé að leggja snjóbræðslukerfi.
Rammar minni glugga eru með álklæddu timbri.
Útihurðir, rennihurðir og stærri gluggar eru með álkörmum.
Álklæddir timburkarmar eru frá Berki hf. á Akureyri og gler í þá er frá Glerverksmiðjunni Samverk ehf.
Álhurðir, álgluggakarmar og álrennihurðir eru frá Fagval ehf. með sólvarnargleri.
Litur á öllum álkörmum og álkápum á timburkörmum er RAL: 7022 Umbrian Grey 30% gljástig.
Timbrið í timbur/álkörmum er málað í sama lit.
Bílskúrshurð er einnig í lit RAL: 7022 Umbrian Grey 30% gljástig, hurðaflekar eru með sléttri áferð. Bílskúrshurðin skilast með mótor. Svalahandrið er smíðað úr flatjárnum, galvanizerað og svo pólýhúðað til að auka ending í lit RAL:7022 Umbrain Grey 30% gljástig.
Innfelling fyrir ljós í steypu ásamt ljósum frá Lumex.
Öll ljós utan húss eru komin, fyrir utan garðlýsingu.
Stigi milli hæða er úr U-stálskúffum sem eru samansoðnar í ramma og boltaðar utan á vegginn og verða klæddar með timburplötum. Stigi og stigaop eru án handriða.
Gólfhitalagnir eru komnar á bæði neðri og efri hæð, gólfhitakistur tengdar, hiti kominn á báðar hæðir.
Ath. Stýrikerfi fyrir hitakerfi er ekki full klárað en að mestu leiti, og skilast í því ástandi eins og það er.
Þak er einangrað að utan og frágengið.

Húsið er að mestu einangrað að innan en að hluta til að utan.
Einangrun að innan er stærsti hluti af einangrun hússins. Minni háttar einangrun er að utanverðu.
Öll einangrun að innanverðu er tilbúin, ásamt múrvinnu, gipsvinnu og grunnmálningu.
Búið er að einangra að utan, setja upp undirkerfi og klæða með 1x6” timbri (undirkerfi klárt) klæðning verður ekki innifalin.
Þannig gefst kaupanda kostur á að velja klæðningu í samráði við arkitekt hússins.
Þeir milliveggir á efri hæð sem eru hlaðnir, eru hlaðnir með vikurstein.
Búið er að múra, sparsla og grunna þá, nema inni á baðherbergjum. Þar er eingöngu búið að múra. Hluti milliveggja eru reistir með gipsi.
Loft á báðum hæðum ásamt nokkrum steyptum veggjum eru sjónsteypt.
Búið er að setja innbyggðan búnað fyrir handlaugartæki og klósettkassa í öll baðherbergi, ásamt innbyggðum búnaði fyrir sturtutæki á efri hæð. Ath. eingöngu er um að ræða innbyggða hluti.
Innbyggður handlauga- og sturtubúnaður eru gæðavara frá Vola.
Vakin er athygli á að sturtubúnaður á neðri hæð er ekki innifalinn, þar sem veggur sem tækið á að fara inní er aðeins að hluta kominn upp.

Loftræstilagnir fyrir báðar hæðir eru steyptar í gólfplötu efri hæðar. Ekki er innifalin samstæða eða tengi- og tæknibúnaður fyrir loftræstikerfi. Allt sem snýr að arin er ekki innifalið, nema búið er að ganga frá röri í þakeinangrun fyrir kamínu.
Ath. kjarnabora þarf í gegnum útvegg fyrir kamínuröri.
Rafmagns- og vatnsinntök eru komin inn í húsið, dreifikista fyrir heitt og kalt vatn er komin ásamt forhitara fyrir heita vatnið. Rafmagn er full frá gengið með lokaúttekt á rafmagni. Húsið er með Free @ Home hússtjórnunarkerfi frá ABB
Sá hluti hússins sem er múraður að utanverðu er filtaður uppúr gráu steiningalími frá Steypustöðinni og málaður með Steinvara 2000 (hvítt 500) frá Málningu hf.
Innanhúss: Tilbúið til innréttingar

Raflagnateikningar\ Raflögn, hússtjórnunarkerfi ásamt lýsingarhönnun frá Lúmex fylgja með í kaupunum, (tækjaskápur í bílskúr).
Lagnir: Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Inntak hita og neysluvatns klárt.
Neysluvatn lagt í gólf og veggi samkvæmt teikningum. Hita-, rafmagns og vatnslagnir eru lagðir í gólfplötu og steypta innveggi samkvæmt teikningum. 
Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi og afhendist án þráðlausra hitastýringa. Stofninntök neysluvatnslagna tengd og full frágengin.

Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd.
Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat.
Kaupandi skal fá nýja byggingastjóra og meistara að verkinu við afhendingu og sér um úttektir eftir afhendingu eignar.
Allar byggingarteikningar afhendast samþykktar frá skipulagsnefnd Kópavogs til kaupanda // Kaupandi greiðir fyrir allar breytingar á teikningum sem hann kann að óska eftir. 
 Eignin verður afhent í því ástandi sem hún er.


Allar nánari veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / helgi@fstorg.is  og  Sigríður Rut Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is 
 Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan TORG  bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
29.2 m2
Fasteignanúmer
2329168
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (59)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Erluhraun 3
Bílskúr
Skoða eignina Erluhraun 3
Erluhraun 3
220 Hafnarfjörður
178.7 m2
Einbýlishús
524
782 þ.kr./m2
139.800.000 kr.
Skoða eignina Friggjarbrunnur 7
3D Sýn
Bílskúr
Friggjarbrunnur 7
113 Reykjavík
250.8 m2
Einbýlishús
614
777 þ.kr./m2
194.900.000 kr.
Skoða eignina Úugata 18
Bílskúr
Opið hús:26. maí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Úugata 18
Úugata 18
270 Mosfellsbær
231 m2
Raðhús
736
692 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Hnoðravellir 44
Bílskúr
Skoða eignina Hnoðravellir 44
Hnoðravellir 44
221 Hafnarfjörður
209 m2
Einbýlishús
614
716 þ.kr./m2
149.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin