DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 29. júlí 2025

Norðurgata 17

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-801
224.4 m2
4 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
144.800.000 kr.
Fermetraverð
645.276 kr./m2
Fasteignamat
101.200.000 kr.
Brunabótamat
110.800.000 kr.
Mynd af Ragna Valdís Sigurjónsdóttir
Ragna Valdís Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2304166
Landnúmer
206375
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Gott
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Gott
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Gott
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Pallur
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali s. 846-6581 og Hús fasteignasala. kynna í einkasölu eignina Norðurgata 17, 801 Selfoss.
Stórglæsilegt og smekklega endurnýjað einbýlishús í náttúruparadís rétt fyrir utan Selfoss.

** Seljendur skoða skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu **

Um er að ræða einstakt og vel skipulagt einbýlishús á dásamlega friðsælum stað í Tjarnabyggð – þar sem náttúran umlykur heimilið og kyrrðin ræður ríkjum.
Húsið er reisulegt timburhús með viðhaldslítilli álklæðingu og timbri í bland, byggt árið 2007 og stendur á glæsilegri 11.085 m² eignarlóð þar sem nægt rými og náttúruleg fegurð skapa einstaklega notalega stemningu. Húsið hefur fengið umtalsverðar endurbætur og býr nú yfir nútímalegum og smekklegum innviðum.
Heildarstærð eignarinnar er 224,4 fm og þar af er bílskúr 37fm sem hefur verið breytt í fullbúna íbúð –  innkeyrsluhurð fjarlægð og settir gluggar til að nýta rýmið sem best. Allar innréttingar í bílskúr eru frá Brúnás. Við húsið var auk þess byggð glæsileg rúmgóð 23 fm sólstofa árið 2020 , flísalögð með gólfhita og kamínu, sem nýtist vel sem auka rými til dvalar með óviðjafnanlegu útsýni yfir náttúruna.

Eignin er staðsett á rólegum og fallegum stað þar sem sameinast kyrrð landsbyggðarinnar og gott aðgengi að þjónustu. Aðeins um 40 mínútna akstur er til Reykjavíkur, sem gerir staðsetninguna afar hentuga fyrir þá sem vilja njóta sveitarlífs án þess að vera langt frá borginni. Selfoss er í um 4 km fjarlægð, þar sem finna má alla helstu þjónustu og afþreyingu.

Sveitarfélagið Árborg sér um alla helstu þjónustu í Tjarnabyggð þ.m.t viðhald vega, snjómokstur, skólaakstur, sorphirðu, tæmingu rotþróa, heitt og kalt vatn.

Heimilt er að byggja alls 1.500 m2 af húsnæði á lóðinni.


Nánari lýsing:
Rúmgóð forstofa með góðum fataskáp, inn af forstofu er gestasnyrting þar sem allt var endurnýjað árið 2024, innrétting frá Byko og nýjar flísar úr flísabúðinni. Þvottahús er inn af forstofu með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er svo gengið inn í bílskúr sem hefur nú verið innréttaður sem íbúð, þar er vínilparket á gólfum og mikið geymslupláss. Svefnherbergi eru fjögur talsins og eru öll með nýju harðparketi á gólfi og fataskápum. Í hjónaherbergi er sér fataherbergi með góðu skápaplássi. 
Eldhús er með fínni hvítri innréttingu og stórri eyju, borðplata á eyju var endurnýjuð árið 2018. Hvítur Silestone steinn frá S.Helgason.
Stofa er björt og rúmgóð þar sem er bæði útgengt út á verönd og inn í sólstofu. Baðherbergi var endurnýjað árið 2024. Innrétting frá Axis og borðplata/steinn frá Fanntófell. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og þar er bæði sturta og baðkar. Upphengt salerni og handklæðaofn. 
Nýjar flísar eru á gólfum í alrými og votrýmum. Nýtt harðparket inn í svefnherbergjum.
Gólfhiti er í öllu húsinu ásamt sólstofu þar er stór rennihurð þar sem er hægt að opna út í garð.
Gestahús er á baklóð ásamt geymslu og hænsnakofa.
Nýlegur heiturpottur er á sólpalli ásamt útisturtu.
Hellulögð stétt fyrir framan og aftan hús.
Hleðslustöð í innkeyrslu.
Lítill fótboltavöllur og rólur í garði.

* Sjón er sögu ríkari*

Nánari upplýsingar veitir, Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali, S. 846-6581, tölvupóstur ragna@husfasteign.is

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       

                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/04/201534.170.000 kr.48.000.000 kr.200.4 m2239.520 kr.
17/09/201025.370.000 kr.40.000.000 kr.200.4 m2199.600 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (66)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskiás 10 íb101
Opið hús:22. apríl kl 17:00-17:30
Eskiás 10 íb101
210 Garðabær
122 m2
Fjölbýlishús
43
975 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðargerði 33
Bílskúr
Opið hús:30. apríl kl 12:00-12:45
Skoða eignina Heiðargerði 33
Heiðargerði 33
108 Reykjavík
165.8 m2
Einbýlishús
513
769 þ.kr./m2
127.500.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg - Þaksvalir 0505
Eirhöfði 7 (5).png
Laugaborg - Þaksvalir 0505
105 Reykjavík
129.7 m2
Fjölbýlishús
523
1302 þ.kr./m2
168.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 41
Bílskúr
Skoða eignina Suðurgata 41
Suðurgata 41
230 Reykjanesbær
156.4 m2
Einbýlishús
52
498 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin