Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Falleg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð (2 svefnherbergi + 2 stofur) í góðu fjölbýlishúsi sem hefur fengið gott viðhald miðsvæðis í Reykjavík. Íbúðin er á 1.hæð hússins, aðeins gengið upp ½ hæð frá anddyri hússins. Búið er að endurnýja eldhús og baðherbergi, bæði innréttingar og tæki á fallegan og vandaðan hátt. Árið 2017 var skipt um glugga í íbúðinni í framhlið, árið 2020 var þakpappi og þakjárn endurnýjað á húsinu og 2023 var dren, hellulögn og hitalögn endurnýjað við framhlið hússins (austur hlið hússins).
Stutt er í skóla , leikskóla og alla helstu þjónustu og verslanir frá eigninni.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsingar eignar:Gengið er inn í anddyri á jarðhæð og er þaðan aðeins ½ hæð upp að íbúðinni.
Forstofa: Komið er inn í forstofuhol með dökkum flísum á gólfi.
Eldhús: Eldhús er fallega innréttað með miklu og góðu skápaplássi. Innrétting er í U með hvítum skápum og dökkri borðplötu. Á einn vegg ná skápar frá gólfi og upp í loft með góðum tækjaskáp, bakaraofni í vinnuhæð og búrskáp, í miðju eru neðri skápar undir vaski við góðan glugga, á þriðja vegginn eru efri og neðri sápar með lýsingu undir efri skápum, góðu vinnuborði og innbyggðum ísskáp. Dökkar flísar eru á gólfi.
Stofa + borðstofa: Stofu rými íbúðarinnar er sérlega rúmgott og eru borðstofan og setustofan saman í tvískiptu rými að hluta með harðparketi á gólfi. Á milli stofanna er stór rennihurð svo hægt sé að stúka á milli ef þörf er á. Frá setustofunni er útgengt á vestur svalir sem snúa út á óbyggt tún og því góð yfirsýn og næði á svölunum. Auðvelt er að bæta við þriðja svefnherberginu með því að stúka af hluta af stofunni.
Baðherbergi: Baðherbergið er glæsilega innréttað með Terraso flísum á gólfi og á tveimur af fjórum veggjum rýmisins. Hvít innrétting er undir vaski og stein borðplata. Speglaskápur er á vegg fyrir ofan vask. Handklæðaofn er á vegg. Djúpur sturtubotn er í rýminu sem nýtist einnig sem baðkar fyrir yngri kynslóðina. Góður opnanlegur gluggi.
2 x svefnherbergi: Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og eru þau bæði rúmgóð með harðparketi á gólfi. Fallegur fataskápur er veggja á milli og upp í loft með rennihurðum í hjónaherberginu og í barnaherberginu er þrefaldur innfeldur fataskápur.
Geymsla: Rúmgóð geymsla er í sameign sem fylgir íbúðinni, 9,4 m2.
Sameign: Þvotta-og þurrkherbergi og hjólageymsla.
Í sameign eru aðskilin þvottaherbergi og þurrkherbergi sem nýtast fyrir íbúðir stigagangsins (aðeins er 1 hæð niður í sameignina frá íbúðinni). Einnig er góð hjóla- og vagnageymsla.
Framkvæmdir samkvæmt upplýsingum frá húsfélagi:2023 Dren endurnýjað fyrir framan hús og nýjar hellur og hitalögn lögð í stétt. Skolplagnir endurnýjaðar í kjallara frá húsi út í brunn.
2020 Þakpappi og þakjárn endurnýjað
2017 Steypuviðgerðir að utan og hús málað.
2017 Skipt um glugga í austur hlið íbúðarinnar.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is