** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsilegt 357,0 m2 einbýlishús á tveimur hæðum með aukaíbúð og bílskúr við Spóahöfða 22, á jaðarlóð við golfvöllinn í Mosfellsbæ. Glæsilegt útsýni er frá eigninni. Tvennar svalir og eru aðrar þeirra með svalalokun. Afgirt lóð með skjólveggjum. Stórar timburverandir með heitum potti. Stórt steypt bílaplan með snjóbræðslu (lokað kerfi).
Húsið er í dag skráð á tvö fastanúmer, þ.e. 259,7 m2 efri sérhæð m/bílskúr ásamt hluta neðri hæðar og hins vegar 97,3 m2 íbúð á neðri hæð. Búið er að opna á milli íbúðanna og húsið nýtt sem ein heild. Auk þess er ca. 40 m2 óskráð rými undir bílskúr og þar er búið að innrétta auka íbúð sem er í útleigu í dag.Eignin skiptist í sex svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, stóra geymslu, tvær forstofur, sjónvarpshol, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr.
Auka íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi, gluggalaust herbergi, eldhús og stofu. Köld útigeymsla er einnig á jarðhæð.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Endurbætur sem hafa verið gerðar á eigninni samkvæmt seljanda: Allar raflagnir uppfærðar og yfirfarnar árið 2007. Síðast yfirfarið árið 2024 þegar rafhleðslutengi fyrir tvo bíla var sett upp í gegnum bílskúr. Frárennslislagnir yfirfarnar og uppfærðar þar sem þurfti árið 2014. Ný heimlögn/tenging sett upp jafnhliða gatnagerð í Súluhöfða árið 2022. Neysluvatnslagnir yfirfarnar og uppfærðar árið 2007 ásamt forhitara. Árið 2019 var baðherbergi tekið í gegn á neðri hæð og þá var jafnframt yfirfarið neysluvatnskerfi og uppfært. Snjóbræðslukerfi var yfirfarið og uppfært ásamt blöndunartækjum í bílskúr árið 2022. Neysluvatnskerfi, baðherbergi (m.a. settur nýr sturtuklefi, vaskur og málað) og rafkerfi yfirfarið í aukaíbúð í mars árið 2025.
Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 er inn af forstofu með parketi á gólfi.
Hol er með parket á gólfi. Úr holi er stigi niður á neðri hæðina. Úr holi er opið inn í stofu og borðstofu.
Stofa og borðstofa eru í opnu og rúmgóðu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir með glæsilegu útsýni.
Eldhús er með fallegri innréttingu með steini á borði og borðkrók. Í innréttingu er helluborð, blástursofn í borðhæð og ljósa háfur yfir halogen helluborði. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Úr eldhúsi er gengið út á yfirbyggðar flísalagðar svalir með miklu útsýni yfir golfvöll Mosfellsbæjar og út á Sundin.
Svefnherbergi nr. 2 (Hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, handklæðaofni og nuddbaðkari.
Úr holi er stigi niður á neðri hæð hússins.
Neðri hæð:Forstofa er með flísum á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 5 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 6 er með parketi á gólfi.
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og með innréttingu, handklæðaofni og sturtu.
Þvottahús er með innréttingu og handklæðaofni. Flísar á gólfi.
Stór
geymsla er inn af þvottahúsi með flísum á gólfi.
Auka íbúð: Við hlið inngangs á neðri hæð er sérinngangur í
stúdíóíbúð sem innréttuð er í óskráðu rými undir bílskúr. Íbúðin skiptist í
stofu, eldhúskrók, svefnherbergi og baðherbergi með sturtu. Bílskúr er rúmgóður, skráður 40,5 m2 og með flísum á gólfi. Rafdrifinn bílskúrshurðaopnari, hiti, rafmagn, rennandi vatn, vinnuborð, fataskápar og innrétting er í bílskúr.
Verð kr. 260.000.000,- Allar nánari upplýsingar veitir Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali í síma 698-8555 eða svanthor@fastmos.is