Domusnova Akranesi og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: Hrísrími 5 frábærum stað miðsvæðis í Grafarvoginum.
** STUTTUR AFHENDINGARTIMI **
Snyrtileg og vel skipulögð eign á góðum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Grunnskóli og leikskóli í göngufæri og göngustígar liggja um allt hverfið. Stutt er í fjölbreytta verslun, þjónustu og afþreyingu í Spönginni og Egilshöll.
þriggja herbergja björt og fjölskylduvæna eign á jarðhæð með stæði í bílakjallara. Eign á vinsælum stað við Hrísrima í Reykjavík.
Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu og tvö svefnherbergi. Sér geymsla ásamt rúmgóðu bílastæði í bílakjallara og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Forstofa flísalögð með hengi
Stofa og borðstofa parket á gólfum og dyr útá sérafnotareit (garð)
Eldhús er með innréttingu á tveim veggjum Tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergisgangur.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari og sturtuhaus, innrétting.
Hjónaherbergi er dúkalagt og skápar.
Svefnherbergi I er dúkalagt
Þvottahús er flísalagt með skolvaski.
Sérgeymsla er staðsett í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu. (11,1fm.) ásamt rúmgóðu stæði í bílakjallara skráð (16,3 fm).
Eignin er skráð samkv. fasteignamati og skiptist í íbúðarrými 98,7 fm. ásamt geymslu á jarðhæð sem er skráð 11,1. fm. = 109,7 fm ásamt rúmgóðu stæði í bílakjallara.
Birt flatarrmál samkv. þjóðskrá með bílastæði meðtöldu er 114,9 fm.
Sameign: 2023 málaður stigagangur og nýtt teppi.
Fín eign á frábærum stað í Reykjavík þar sem stutt er í skóla, leikskóla og fallegar gönguleiðir ásamt Spönginni sem er í göngufæri með verslunum og veitingastöðum.
Nánari upplýsingar veita:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali ragga@domusnova.is / sími 861-4644
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.