BYR fasteignasala kynnir í einkasölu KAMBAHRAUN 7, 810 Hveragerði. Fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð, bílskúr með innréttaðri snyrtistofu(íbúð). Húsið stendur innarlega við lítin botnlanga í grónu hverfi rétt við Hamarinn.
Stutt í alla almenna þjónustu, útivist og gönguleiðir í og við Hveragerði. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt, byggt árið 1975 og bílskúr steyptur byggður árið 1977. Eignin skiptist í íbúð 148.7 m² og bílskúr 60.0 samtals 208.7 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Bílskúr: Snyrtistofa (íbúð) og bílgeymsla.
Nánari lýsing;
Íbúðarhús: Anddyri (aðal), þaðan er gengið inn í hol annarsvegar og hjónaherbergi hinsvegar.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er úr eldhúshluta út á
timburverönd til suð-vesturs.
Eldhús, Ikea innrétting með eyju, Electrolux helluborð, háfur, Miele ofn í vinnuhæð, Bosch innbyggður ísskápur, Miele innbyggð uppþvottavél. Á móts við eyju er innrétting með innbyggðum frystiskáp og „kaffibar".
Hol er innan við anddyri, þaðan er innangengt í alrými.
Þrjú svefnherbergi, möguleiki er á að minka hol og útbúa þar fjórða svefnherbergi. Hjónaherbergi með fataherbergi innaf, tvöfaldur fataskápur er í hjónaherbergi, innrétting er í fataherbergi.
Barnaherbergin eru tvö, tvöfaldur fataskápur er í öðru herberginu.
Baðherbergi með baðkari og sturtu innbyggð tæki, upphengt salerni, rúmgóð innrétting, handlaug á borði, gluggar.
Þvottahús er flísalagt í hólf og gólf, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, loftsnúrur og gluggi.
Anddyri (auka) „mudroom" er aftan við eldhús, fjórfaldur fataskápur, gluggi, þaðan er útgengt að bílastæði framan við bílskúr.
Gólfefni: Harðparket er á alrými, holi, svefnherbergjum og fataherbergi. Flísar á anddyri, baðherbergi, þvottahúsi og aukainngangi. Flotað gólf er í snyrtistofu. Skipalakk á bílgeymslu.
Bílskúr:
Snyrtistofa (íbúð) er u.þ.b. 27,7 m² að stærð og skiptist í setustofu/alrými, tvö herbergi og baðherbergi með salerni og handlaug, möguleiki er á að fjarlægja skáp á baðherbergi og setja þar upp sturtu.
Bílgeymsla er u.þ.b. 32,3 m² að stærð opið rými með innleyrsluhurð, gönguhurð og gryfja sem hefur verið nýtt sem geymsla. Rafræn opnun á bílskúr, ein fjarstýring.
Húsið er staðsteypt á einni hæð, járn á þaki. Bílskúr er á einni hæð, járn á þaki. Hellulögð innkeyrsla er við bílskúr, hiti er í innkeyrslu. Steypt stétt er að inngangi hússins hiti er í stétt.
Timburverönd með skjólgirðingu er við húsið til suðurs,
heitur pottur 6-8 manna (hitaveitupottur)
og yfirbyggt grillskýli. Timburverönd er einnig framan við húsið við inngang til suðurs.
Malar bílaplan er á lóð sem hentar fyrir t.d. hjólhýsi, þar er opnanlegt hlið inn í garð. Sorptunnuskýli er á framanverðri lóð fyrir þrjár tunnur. Gróin lóð,
gróðurhús, búið er að lagfæra sundlaug sem var í garði og hækka upp í henni gólf ásamt
því að setja hita í gólfið ásamt skólplögn, gert var ráð fyrir því að reisa á henni garðhús.
Hleðslustöð fyrir rafbíl er á bílskúr og fylgir hún með.
Lóðin er 805,0 m² leigulóð frá Hveragerðisbæ.
Húsið var endurnýjað að mestu leyti árið 2020 meðal annars var: Múr á húsi viðgerður og yfirfarin ásamt því að sprungur voru lagfærðar og hús og bílskúr málað. Garðurinn var tekinn í gegn ásamt aðkomu að húsi. Nýjar timburverandir beggja megin við húsið og steyptir göngustígar. Þak á bílskúr var endurnýjað, þakjárn og pappi. Gluggar og gler voru yfirfarnir. Skolp og neysluvatn var endurnýjað. Rafmagnstafla og tenglar endurnýjaðir í húsi og bílskúr. Gólfhiti var settur í eignina ásamt því að gólfefni voru endurnýjuð. Allar innréttingar voru endurnýjaðar í húsi, eldhúsinnrétting, baðinnrétting ásamt þvottahússinnréttingu og innihurðar.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 221-0561.Stærð: Íbúð 148,7 m². Bílskúr 60,0 m² Samtals 208,7 m².
Brunabótamat: 96.400.000 kr.
Fasteignamat: 89.600.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2025: 92.550.000 kr
Byggingarár: Íbúð 1975. Bílskúr 1977.
Byggingarefni: Steypa.