Fasteignaleitin
Skráð 14. okt. 2024
Deila eign
Deila

Barðavogur 18

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
199.3 m2
8 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
112.900.000 kr.
Fermetraverð
566.483 kr./m2
Fasteignamat
109.000.000 kr.
Brunabótamat
89.720.000 kr.
Byggt 1953
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2022739
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta.
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Endurbyggt um 2000
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já / tvennar svalir
Lóð
68,7
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
- Kominn er tími á að setja dren í kringum húsið en borið hefur á rakaskemmdum á útvegg í kjallara vegna þessa, sjáanlegt í herbergi í kjallara.
- Bílskúr er í slæmu ástandi og komið að viðhaldi.
- Deilur hafa verið milli eigenda í húsinu sem ratað hafa á borð húseigendafélagsins.
RE/MAX /  Júlían J. K. Jóhannsson aðstoðarmaður fasteignasala (sími 823 2641 & julian@remax.is) og Brynjar Ingólfsson Lgf. (sími 666-8-999 & brynjar@remax.is) kynna: 8 herbergja efri sérhæð og ris (4 stofur og 4 svefnherbergi) með sérinngangi og bílskúr við Barðavog 18 í Reykjavík. Neðri hæðin er skráð 117,6 fm, risið 56,2 fm og bílskúrinn 25,5 fm. Einnig er herbergi (var áður þvottahús) og geymsla í kjallara. Skráð heildarstærð eignar er því 199,3 fm.

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.


- Getur verið laus fljótlega.
- Vel staðsett hæð og ris með sérinngangi og bílskúr í grónu hverfi þar sem stutt er í helstu þjónustu. 
- 3 góð svefnherbergi eru í eigninni í dag en möguleiki á 2-3 í viðbót. 
- Björt eign á stórri lóð.
- 2 baðherbergi og þvottahús.


Frekari upplýsingar veitir Júlían J. K. aðstoðarmaður fasteignasala, útskrifaður úr löggildingarnámi í síma 823 2641 eða á netfanginu julian@remax.is.



Lýsing eignar:
Gengið er upp tröppur og inn um sérinngang með forstofu með fatahengi.
Komið inn í rúmgott hol með parketi.
Á hægri hönd er gengið inn í eldhús með innréttingu á 2 veggjum, efri og neðri skápar, flísar á gólfi. Borðkrókur við glugga. 2 gluggar í eldhúsi sem veita góða birtu.
Innaf eldhúsi er þvottahús með flísum á gólfi, snúrum, hillum og gluggum.
Á vinstri hönd er gengið inn í mjög rúmgóð borðstofa og setustofa með parketi á gólfi og góðum gluggum.
Við hlið borðstofu og setustofu er baðherbergi með sturtuklefa, flísar á gólfi sem og upp sturtuvegginn, glugga og salerni.
Mjög rúmgott svefnherbergi við hliðina með parketi á gólfi.
Tvær rúmgóðar og fallegar stofur eru á hæðinni, hægt að loka á milli með rennihurð, parket á gólfi, gengið út á svalir frá annari stofunni. 
Efri hæð: 
Gengið upp stiga með kókosteppi.
Rúmgóð stofa með harðparketi. 
Tvö svefnherbergi með parketi, annað mjög rúmgott með skápum. Svalahurð frá hjónaherbergi og fallegt útsýni yfir Esjuna og fjallahringinn upp í Bláfjöll. Möguleiki á að stækka hitt með því að minnka stofuna.
Baðherbergi með flísum á gólfi, baðkari, glugga, handklæðaofni, upphengdu salerni og viðarinnréttingu.

Frá forstofu er einnig gengið niður á gang með svefnherbergi (var áður þvottahús) og sérgeymslu.
Bílskúr er frístandandi og er í dag nýttur sem óupphituð geymsla. 

Viðhald síðustu ára:
- Húsfélag stofnað í feb. 2024 og stofnaður framkvæmdasjóður. Greitt er 50 þús á mánuði sem skiptast niður eftir eignarhlutföllum.
- Skipt um þrýstijafnara í jan. 2023
- Nýtt spanhelluborð des. 2022
- Þakgluggar lakkaðir af reyndum málara mars 2022
- Nýjar sérsniðnar myrkvagardínur í þakglugga og glugga efri hæðar apríl 2022
- Öll íbúðin máluð í hólf og gólf af reyndum málara nóv 2022
- Nýjar sérsniðnar rimlagardínur  og gardínubrautir des. 2022
- Lagt rafmagn og rafmagnstafla í bílskúr sep. 2021
- Þakrennur hreinsaðar okt. 2021
- Skipt um nokkra ofnakrana


Góð staðsetning í grónu hverfi með leikskólum, grunnskólum og menntaskóla í göngufæri ásamt Skeifunni með öllum sínum verslunum og þjónustu, margar matvöruverslanir eru í göngufæri.  Mjög mikið af hjóla- og gönguleiðum í allar áttir og ekki nema nokkrar mínútur að hjóla eða hlaupa upp í Elliðadalinn.


Frekari upplýsingar veitir Júlían J. K. aðstoðarmaður fasteignasala, útskrifaður úr löggildingarnámi í síma 823 2641 eða á netfanginu julian@remax.is.


Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/03/202173.200.000 kr.74.500.000 kr.199.3 m2373.808 kr.
14/03/201861.950.000 kr.40.000.000 kr.199.3 m2200.702 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 1953
56.2 m2
Fasteignanúmer
2022739
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
25.900.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1972
25.5 m2
Fasteignanúmer
2022739
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.120.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX
http://www.remax.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skeiðarvogur 137
Skeiðarvogur 137
104 Reykjavík
163.6 m2
Raðhús
725
684 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Ásgarður 40
Bílskúr
Skoða eignina Ásgarður 40
Ásgarður 40
108 Reykjavík
161.8 m2
Hæð
413
655 þ.kr./m2
106.000.000 kr.
Skoða eignina Iðunnarbrunnur 6
Iðunnarbrunnur 6
113 Reykjavík
154 m2
Hæð
514
694 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Vættaborgir 94
Bílskúr
Opið hús:03. nóv. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Vættaborgir 94
Vættaborgir 94
112 Reykjavík
141.6 m2
Fjölbýlishús
413
776 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin