CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu bjarta 73,6 fm tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi við Hagamel 18 í Vesturbænum. Sameiginlegt þvottahús sem er innangengt úr íbúð. Sameiginlegur gróinn garður sem snýr til suðvesturs er fyrir framan húsið. Stutt er í alla þjónustu m.a. háskóla, skóla, leikskóla, verslanir, sundlaug, íþróttaiðkun og miðbær Reykjavíkur skammt undan. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Þorbirna Mýrdal, löggiltur fasteignasali í s. 888-1644 eða thorbirna@croisette.isSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT
Þrívíddarteikning af eigninni:
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3-DNánari lýsing:
Sérinngangur og anddyri: Sérinngangur er á hlið hússins. Komið er inn í forstofu með fatahengi. Flísar á gólfi. Stigagangur með teppi á gólfi. Þessi eign er samt sem áður eina íbúðin sem gengur inn um þennan inngang.
Eldhús: Góð eldhúsinnrétting, ofn, gufugleypir og helluborð. Ísskápur getur fylgt með. Flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Opið er á milli stofu og svefnherbergis með rennihurð.
Herbergi: Rúmgott herbergi með parket á gólfi. Lítil geymsla undir stiga er inn af herberginu.
Baðherbergi: Hefur verið tekið í gegn, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, handklæðaofn, flísar í kringum baðkar og á gólfi.
Köld geymsla: Sameiginleg köld geymsla er staðsett undir útitröppum.
Nánari upplýsingar veita: Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða
kalli@croisette.is Þorbirna Mýrdal, löggiltur fasteignasali í s. 888-1644 eða
thorbirna@croisette.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.