*** EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA ***
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Laufengi 1, 112 Reykjavík:Fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja endaíbúð á jarðhæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi með vestur sólpall. Birt stærð eignar er 87,5 fm þ.a. er íbúðarhluti 80,8 fm og geymsla 6,7 fm.
Eldhús og baðherbergi hafa verið endurnýjuð. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s Spöngina, Egilshöll, skóla, leikskóla, og golfvöllur er í göngufæri.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í forstofu / gang, eldhús, stofu / borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi / þvottahús og geymslu sem staðsett er í sameign.
Nánari lýsing eignar: Forstofa / gangur: Komið er inn í rúmgóða forstofu með nýjum forstofuskápum, hvítur upphengdur skápur sem fylgir með, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð með útgengi út á vestur sólpall, sjónvarpsskenkur fylgir með, parket á gólfi.
Eldhús: Endurnýjað. Með nýlegri innréttingu (GKS), tvöfaldur ísskápur og innbyggð uppþvottavél sem fylgja með, spanhelluborði, nýr bakaraofn, vifta, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með nýjum fataskápum.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, rimlar á vegg fylgja ekki með, parket á gólfi.
Baðherbergi / þvottahús: Endurnýjað. Ný baðherbergisinnrétting og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt salerni, handklæðaofn, sturta, gólfhiti, flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla: Í sameign á jarðhæð er 6,7 fm sérgeymsla.
Sameign: Í sameign á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Húsið: Húsið er 3ja hæða steinsteypt með 2 stigagöngum. 5 íbúðir eru í hvorum stigagang.
Lóð: Sameiginleg 1789 fm lóð. Sérmekt bílastæði.
Staðsetning: Smellið hér. Að sögn eiganda er búið að endurnýja eignina mikið undanfarin ár m.a.:* Baðherbergi endurnýjað.
* Eldhúsinnrétting endurnýjuð.
* Nýir fataskápar í forstofu og hjónaherbergi.
* Nýtt parket á íbúðinni.
* Innhurðir endurnýjaðar svo og útihurð í íbúð.
* Nýr bakarofn.
Mikið endurnýjuð eign á frábærum stað þar sem stutt er leik-, grunn- og framhaldsskóla, íþrótta- og afþreyingarmiðstöðina Egilshöll, Korpúlfsstaðavöll og verslunarmiðstöðina Spöngina. Eign sem vert er að skoða.
Allar nánari upplýsingar veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteigna- og skipasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893-3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.