Hraunhamar fasteignasala kynnir í einkasölu: Hvassaleiti 58 - björt 2ja herbergja íbúð á 4. hæð í húsi í fyrir eldri borgara (VR blokkin fyrir 63 ára og eldri). Í húsinu er boðið er uppá ýmsa þjónustu og afþreyingu fyrir íbúa hússins, m.a. matsalur, hárgreiðslustofa, fótaaðgerðastofa, föndurstofa og leikfimisalur. Hægt er kaupa heitan mat í hádeginu. Vel staðsett íbúð í göngufæri við m.a. Kringluna og alla helstu þjónustu og verslun.
Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, stofa, borðstofa, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, svalir og geymsla.
Lýsing eignarinnar: Komið er inn í
forstofu með fataskáp.
Stórt bjart opið rými sem er
stofa, borðstofa og eldhús, gengið er út úr stofu á
svalir.Rúmgott
svefnherbergi með góðum fataskápum.
Rúmgott baðherbergi, innrétting og sturta sem gengið er inní.
Á hæðinni er
sérgeymsla og einnig sameiginlegt þvottahús á hæðinni með tækjum. Í kjallara er einnig rúmgóð
geymsla.Íbúðin er sérlega björt og rúmgóð. Húsið hefur fengið jafnt og gott viðhald í gegnum árin. Innifalið í húsfélagsgjaldi er þrif á sameign, umhirða á lóð, allt rafmagn í sameign, allur hitakostnaður, húseigendatrygging og framkvæmdasjóður. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.Á jarðhæð hússins er félagsmiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar og þar er boðið uppá ýmsa þjónustu t.d. heitan mat í hádeginu og miðdegiskaffi í stórum og björtum matsal. Á hæðinni er vinnustofa, hárgreiðslu,- og fótaaðgerðarstofa. Í félagsmiðstöðinnu er boðið uppá fjölbreytt félags- og tómstundastarf auk fjölda námskeiða. Auk þess er æfingasalur, búningsklefar og sturtur á hæðinni.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. Þjónustusamningi
Hraunhamar er ein af elstu fasteignasölum landsins, stofnuð 1983 og fagnar því 41 ára afmæli á árinu 2024.
Hraunhamar í farabroddi í 40 ár! – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.