Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Ásatún 40 íbúð 203 - Björt og vel skipulögð íbúð á vinsælum stað í fjölbýli með lyftu í Naustahverfi á Akureyri - stærð 67,3 m²
Skemmtilegt útsýni úr stofu og gluggum til norðurs út fjörðinn.Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu innan íbúðar sem nýtist sem herbergi auk geymslu á jarðhæð. Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús og stofa mynda opið og rúmgott alrými með harðparketi á gólfi. Úr stofunni er skemmtilegt útsýni, þar sem Súlur blasa beint við út um stofugluggann, og úr stofu er jafnframt gengið út á steyptar suður svalir.
Eldhús er með snyrtilegri tvílitar innréttingu, harðparketi á gólfi og innfelldri uppþvottavél sem fylgir með við sölu.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri innréttingu, speglaskáp, upphengdu WC, handklæðaofni og sturtu. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Innan íbúðar er auka svefnherbergi, 9,0 m² að stærð, skráð sem
geymsla. Rýmið er nýtt sem herbergi í dag og er með glugga til norðurs, nokkuð góðu útsýni út fjörðinn, fataskáp og harðparketi á gólfi. Að auki fylgir eigninni
sér geymsla á jarðhæð, skráð 1,8 fm.
Annað- Gólfhiti er í allri íbúðinni.
- Steyptar suðursvalir, um 9 fm
- Vel staðsett í Naustahverfi
- Stutt í skóla og alla helstu þjónustu
- Stutt í verslun, m.a. Bónus
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.