RE/MAX & Oddur Fasteignasali kynna:Falleg þriggja herbergja íbúð á efstu hæð að Naustabryggju 41. Eignin er 82,2 fm þar af geymsla í kjallara 6,8fm. Íbúðin samanstendur af tveimur svefnherbergjum, stofu, holi, eldhúsi, baðherbergi og svefnlofti. Mikil lofthæð og háir stórir gluggar í alrými. Íbúðin stendur alveg við sjóin.
Smelltu hér til að skoða eignina í 3-D
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent beint af vef remax.isNánari lýsing:Forstofa parket á gólfi, hægt að gera stiga upp á loft úr forstofu.
Eldhús flísar á gólfi, tengi fyrir uppþvottavél, stórir gluggar og mikil lofthæð.
Stofa er björt með parketi á gólfi, mikilli lofthæð og útgengi á svalir sem snúa í suður.
Hjónaherbergi parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi flísagt í hólf og gólf, sturta, upphengt salerni, vaskur á lítilli innréttingu.
Allar nánari upplýsingar veitir Oddur Grétarsson löggiltur fasteignasali, s: 782-9282 eða á oddur@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk