Fasteignaleitin
Opið hús:08. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 4. sept. 2025
Deila eign
Deila

Brekkuhvammur 10

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
166.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
127.900.000 kr.
Fermetraverð
768.168 kr./m2
Fasteignamat
94.250.000 kr.
Brunabótamat
72.800.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Byggt 1958
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2074179
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Lítur vel út
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallegt og þó nokkuð endurnýjað 113,2 fermetra einbýlishús á einni hæð auk 21,0 fermetra nýs sólskála og 32,3 fermetra bílskúrs á 678,0 fermetra glæsilegri lóð við Brekkuhvamm í Hafnarfirði.

Húsið hefur verið þó nokkuð endurnýjað hið innra á sl 15 árum, m.a. eldhúsinnréttingar og tæki, baðherbergi, gólfefni, innihurðir o.fl. 
Klóaklagnir undir húsi út í brunn og þaðan út í götu voru endurnýjaðar fyrir um 10 árum síðan. Rafmagnstöflur hafa verið endurnýjaðar og ofnar og neysluvatnslagnir að hluta.

Skv. Fasteignaskrá Íslands er íbúðarrými skráð 113,2 fermetrar og bílskúr er skráður 32,3 fermetrar.  Verið er að klára lokaúttekt á nýjum 21,0 fermetra sólskála og verður það klárað af seljendum.  Eftir þá skráningu mun heildarstærð eignarinnar mælast 166,5 fermetrar án um 12,0 fermetra gróðurhúss sem ekki er skráningarskylt.

Lýsing eignar:

Forstofa, flísalögð og rúmgóð með góðum fataskápum og gólfhita.
Þvottaherbergi, innaf forstofu er mjög rúmgott, flísalagt með gólfhita og með góðum gluggum. Innrétting með vaski og vinnuborði.
Hol, parketlagt. 
Eldhús, parketlagt og rúmgott með gluggum í tvær áttir og borðaðstöðu. Fallegar hvítar + beykiinnréttingar með flísum á milli skápar tengi fyrir uppþvottavél og nýlegum tækjum og háfi.
Hjónaherbergi, parketlagt og með fataskápum.
Baðherbergi, með glugga, nýlega endurnýjað. Flísa- og mosaiklagt gólf og veggir, handklæðaofn, vegghengt wc, innrétting og flísalögð sturta með sturtugleri.
Barnaherbergi, parketlagt.
Samliggjandi stofur, mjög rúmgóðar, parketlagðar og bjartar með gluggum í þrjár áttir. Mögulegt er að stúka af svefnherbergi úr hluta stofa. Úr stofum er gengið inn í nýjan 21,0 fermetra sólskála.
Sólskáli, parketlagður og með gólfhita. Úr skála eru tveir útgangar á lóð til suðvesturs. Sólskálinn er virkilega glæsilegur, nýbyggður, og er 21,0 fermetri að stærð.
Geymsla, er undir forstofu og þvottaherbergi, um 14 fermetrar að stærð en er ekki mæld inn í stærð eignarinnar.

Bílskúr, sem er 32,1 fermetri að stærð, er með nýlegri innkeyrsluhurð og mótor, göngudyrum og gluggum. Nýleg rafmagnstafla sem gerð er fyrir hraðhleðslustöð, hitaveita og rennandi heitt og kalt vatn.

Húsið að utan lítur vel út og hefur greinilega fengið gott viðhald í gegnum árin. Nýlega voru gluggar og gler á austurhlið hússins endurnýjuð auk þess sem aðrir gluggar voru yfirfarnir og lagfærðir eins og þurfti. Þakjárn lítur vel út, bæði á húsi og bílskúr og almennt lítur húsið vel út að utan. 

Lóðin, sem er 678,0 fermetrar að stærð, er virkilega glæsileg og afgirt að stórum hluta.  Miklar hellullagðar og steyptar stéttir með hitalögnum undir við inngang í húsið. Malarbeð með gróðri, fallegur gróður og lítil tyrfð flöt. Matjurtargarður og gróðurhús sem ekki er skráð inn í fermetrastærð eignarinnar, en er um 12,0 fermetrar að stærð. Innkeyrsla framan við bílskúr og stétt meðfram bílskúr eru hellulagðar og með hitalögnum undir. 

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum stað við Brekkuhvamm í Hafnarfirði þaðan sem stutt er í leiksóla, skóla, verslanir og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1956
32.3 m2
Fasteignanúmer
2074179
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.900.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hverfisgata 39
Opið hús:04. sept. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Hverfisgata 39
Hverfisgata 39
220 Hafnarfjörður
132.2 m2
Einbýlishús
524
907 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Miðvangur 53
Bílskúr
Skoða eignina Miðvangur 53
Miðvangur 53
220 Hafnarfjörður
220.6 m2
Raðhús
715
626 þ.kr./m2
138.000.000 kr.
Skoða eignina Sléttahraun 20
20250824-DJI_0925.jpg
Skoða eignina Sléttahraun 20
Sléttahraun 20
220 Hafnarfjörður
199.9 m2
Hæð
64
600 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Sléttahraun 20
20250824-DJI_0925.jpg
Skoða eignina Sléttahraun 20
Sléttahraun 20
220 Hafnarfjörður
199.9 m2
Hæð
64
600 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin