DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 10. ágúst 2025

Heklubyggð

SumarhúsSuðurland/Hella-851
71.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
700.843 kr./m2
Fasteignamat
38.137.000 kr.
Pallur
Á einni hæð
Fasteignanúmer
2342319
Landnúmer
198151
Húsgerð
Sumarhús
Hæðir í húsi
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sumarhúsið í Hekluhrauni 10 er næstum fullklárað, með klæðningu og rafmagni. Þörf er á að gipsklæða að hluta og loka hluta veggja og frágang í kringum glugga.
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega fallegt sumarhús og fjórar eignarlóðir um 4,6 hektarar á glæsilegum útsýnisstað á skipulögðu sumarhúsasvæði, við Heklu og Selsundslæk í Rangárþingi ytra. Um er að ræða sannkallaða náttúruperlu þar sem ríkir einstök kyrrð, víðáttumikið útsýni og stórbrotið landslag. Frá svæðinu má meðal annars sjá til Bjólfells og Búrfells. 

Staðsetningin býður upp á ótal möguleika fyrir þá sem vilja skapa sitt eigið athvarf í íslenskri náttúru, hvort sem er fyrir frístundir, hestamennsku, útivist eða uppbyggingu í ferðaþjónustu. Aðeins er um 1,5 klst. akstur frá Reykjavík og svipuð vegalengd frá svæðinu upp í Landmannalaugar.

** ATH seljandi skoðar einnig skipti **


Um ræðir sumarhús 71,2 fm. og fjórar eignarlóðir 46.600 fm. (4,66 ha.) sem seljast saman og skiptast eftirfarandi:

Hekluhraun 10 fastanr. 234-2318:

Á Hekluhrauni 10 er búið að reisa fallegt og vel skipulagt 71,2 fm. sumarhús með stórbrotnu útsýni. Húsið samanstendur af stóru og björtu alrými með stofu og eldhúsi, tveimur svefnherbergjum og baðherbergi. Svefnloft er fyrir ofan annað svefnherbergið. Í eldhúsi eru vandaðar innréttingar frá Habitat. Allt efni á baðherbergjum frá Álfaborg og einnig blöndunartæki. Rennihurð í stofu er vegleg frá Marokkó. Kamína er í stofurými.  Hellulögð verönd er fyrir utan hús með rafmagnspotti. Húsið er hitað upp með varmadælu, hitavatnskútur er nýlegur. Mikið og gott útsýni er í allar áttir.  Samkvæmt skipulagsskilmálum er byggingarreitur rúmur og heimilt að reisa tvö sumarhús á lóðinni. Fjarlægð milli húsa innan lóðar skal vera minnst 20 m. en þó má gestahús vera nær. Hús skal vera staðsett í samráði við byggingarfulltrúa Rangárþings ytra.  Sumarhús skulu að jafnaði vera á einni hæð og skal leitast við að aðlaga hús sem best að landslagi. Bílastæði eru komin á Hekluhraun 10.
Stærð lóðar 16.400 fm.

Hekluhraun 12 fastanr. 234-2319:
Einstaklega falleg og gróin eignarlóð undir sumarhús. Kalt vatn og rafmagn við lóðarmörk, skv. deiliskipulagi. Samkvæmt skipulagsskilmálum er byggingarreitur rúmur og heimilt að reisa tvö sumarhús á lóðinni. Fjarlægð milli húsa innan lóðar skal vera minnst 20 m. en þó má gestahús vera nær. Hús skal vera staðsett í samráði við byggingarfulltrúa Rangárþings ytra.  Sumarhús skulu að jafnaði vera á einni hæð og skal leitast við að aðlaga hús sem best að landslagi. Heimilt að setja upp bílastæði.
Stærð lóðar er 13.000 fm.

Svínhagi SH 1 fastanr. 234-2425: Stærð lóðar 9.300 fm.

Svínhagi SH 4 fastanr.234-2428: Stærð lóðar 7.900 fm.

Sumarhúsafélag er í Heklubyggð, sem er hagsmunafélag sumarhúsaeigenda á svæðinu en viðhald vega innan svæðisins er meginverkefni þess auk þess sem haldin er fjölskyldusamkoma á vegum félagsins hverja verslunarmannahelgi. Félagsgjöld kr. 25.000,- á ári.  Vatnsgjald á ári er 0,29 % af samanlögðu fasteignamati bygginga og lóðar/landspildna.
Vegvísir: Þegar komið er að Svínhaga að sunnanverðu er farið inn á Rangárvallaveg (nr. 264) af Suðurlandsvegi austan Hellu. Vestan Gunnarholts er síðan farið inn á Þingskálaveg (nr. 268) sem liggur að Svínahaga. 

Vegvísir: Þegar komið er að Svínhaga að sunnanverðu er farið inn á Rangárvallaveg (nr. 264) af Suðurlandsvegi austan Hellu. Vestan Gunnarholts er síðan farið inn á Þingskálaveg (nr. 268) sem liggur að Svínahaga. 

HÆGT ER AÐ SKOÐA SVÆÐIÐ Í ÞRÍVÍÐU UMHVERFI MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

UPPLÝSINGAR UM SKIPULAGSSKILMÁLA FRÍSTUNDABYGGÐAR Í HEKLUBYGGÐ MÁ SKOÐA MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

SKIPULAGSUPPDRÁTT MÁ SKOÐA MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
RE/MAX
http://www.remax.is

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ofanleitisvegur 15
Á einni hæð
Ofanleitisvegur 15
900 Vestmannaeyjar
80 m2
Sumarhús
413
686 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Vatnsendahlíð 113
Á einni hæð
Heitur pottur
Vatnsendahlíð 113
311 Borgarnes
63.1 m2
Sumarhús
312
515 þ.kr./m2
32.500.000 kr.
Skoða eignina Merkihvoll 10
Heitur pottur
Skoða eignina Merkihvoll 10
Merkihvoll 10
851 Hella
107.6 m2
Sumarhús
413
371 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunvegur (Sumarhúsalóð) 6
Á einni hæð
Hraunvegur (Sumarhúsalóð) 6
851 Hella
132.4 m2
Sumarhús
6
37 þ.kr./m2
4.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin