Sjarmerandi og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð með suðursvölum í hjarta miðbæjarins!Baldur fasteignasali - Beinn sími: 450-0000 - baldur@fastgardur.isFalleg og mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð við Ránargötu 9 í hjarta miðbæjarins. Íbúðin er einstaklega hlýleg með aukinni lofthæð, fallegum upprunalegum karakter og skjólsælum suðurgarði. Útgengt er úr stofu á stórar suðursvalir með stiga niður í garð.
Eignin skiptist í forstofu, tvær samliggjandi stofur, svefnherbergi, eldhús og snyrtingu á 1. hæð, auk sturtuherbergis geymslu og sameiginlegs þvottahúss í kjallara. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 57,7 fermetrar.
Nánari lýsing:Stofa / borðstofa: Tvær samliggjandi stofur með fallegum gluggum. Útgengt á stórar suðursvalir úr fremri stofunni, en innri stofan er nýtt sem svefnherbergi í dag. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott með parketi á gólfi.
Eldhús: Nýleg svört innrétting með góðu skápaplássi og vönduðum tækjum. Korkflísar á gólfi. Inn af eldhúsi er búrskápur/geymsla.
Snyrting: Nýlega endurnýjað. Vaskskáður, upphengt salerni og flísar á gólfi.
Kjallari:Sturtuherbergi: Flísalagt gólf og flísalögð walk-in sturta. Hvítur skápur og stór spegill.
Geymsla: Rúmgóð geymsla við hlið sturtuherbergis. Innangengt er í sameiginlegt þvottahús úr kjallara.
Svalir: Svalirnar eru stórar og snúa í suður. Frá svölum er stigi niður í garð
Annað:• Aukin lofthæð í íbúðinni.
• Skipt var um járn á þaki sumarið 2020.
• Skólp hefur verið endurnýjað.
• Einstök staðsetning í miðbænum með verslanir, veitingastaði og þjónustu í göngufæri.
Mjög sjarmerandi eign á eftirsóttum stað í miðborginni!Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.