Fasteignaleitin
Skráð 19. mars 2024
Deila eign
Deila

Ásgarðsvegur 22

Tví/Þrí/FjórbýliNorðurland/Húsavík-640
159.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
35.700.000 kr.
Brunabótamat
58.400.000 kr.
Mynd af Hermann Aðalgeirsson
Hermann Aðalgeirsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1953
Garður
Bílskúr
Fasteignanúmer
2152387
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
St+hlaðið
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Þarf að skoða
Raflagnir
Talið í lagi
Frárennslislagnir
Þarf að skoða
Gluggar / Gler
Talið í lagi
Þak
Þarf að skoða
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Lögeign kynnir eignina Ásgarðsvegur 22, 640 Húsavík, íbúð 201.

Um er að ræða eign í tvíbýlishúsinu að Ásgarðsvegi 22. Húsið er vel staðsett á Ásgarðsvegi með sérstaklega fallegum garði sem snýr að Búðará með skrúðgarð Húsavíkur hinum megin við ánna.
Eignin er samtals 159,7 m2 að stærð og skiptist þannig að íbúð er 113 m2 að stærð og bílskúr sem var byggður síðar er 46,7 m2. 
Húsið sjálft er byggt árið 1953 og er það bæði steypt og hlaðið. Bílskúr sem tilheyrir eigninni var byggður 1992.


Nánari lýsing
Gengið er inn af jarðhæð í íbúðina og er þar forstofa sem áður en gengið upp stiga í miðrými eignar. Forstofa var endurbyggð árið 2006. Þar á hægri hönd er eldhús en baðherbergi og herbergi eru á vinstri hönd á gangi. Stofa er svo í miðrými og er þar útgengi út á svalir. 
Stigi á milli hæða er parketlagður með sambærilegu parketi og er á efri hæðinni. Parket er gegnheilt og kemur frá Aldin. Panelklæðning er á herbergisgang og herbergjum að hluta. Eldhús er í enda íbúðar með eldri innréttingu, með efri og neðri skápum og er borðkrókur við enda innréttingar. Gengið er inn í stofu af gangi í gegnum bogadregið hurðarop og gert ráð fyrir bæði borðstofu og sjónvarpsstofu. Útgengi er út á rúmgóðar svalir úr stofunni og er þær með fallegu útsýni yfir Búðará og skrúðgarð. Baðherbergi var endurnýjað fyrir um 15 árum og er baðherbergi með sturtu og vaskainnréttingu með skáp þar við hliðina. Baðherbergið er flísalagt í sturtunni og gólf og svo eru baðþiljur frá Þ. Þorgríms á veggjum. Herbergin eru þrjú og eru þau öll ágætlega rúmgóð með góðum fataskápum.
Stórt geymslurými er yfir allri eigninni með kvisti sem eykur notkunarmöguleika rýmisisins til muna.
Bílskúr er frístandandi við hús og er hann mjög rúmgóður og er skráð stærð 46,7 m2. Rafmagnshurð er að framan og inngangshurð er á hlið skúrsins. Geymsluloft er yfir bílskúrnum. Gott aðgengi er að bílskúrnum þar sem hellulagt bílastæði er fyrir framan hann. Bílskúr er einnig notaður sem þvottahús og er þar bæði heitt og kalt vatn.
Garður er í sameign og er hann að mestu leyti gróinn í sérlega fallegu umhvergi þar sem hann liggur að Búðará, þar sem búið er að setja brú yfir hluta af á og gera sérlega fallegt útisvæði.

Annað;
Forstofa var endurbyggð árið 2006.
Gler virðist vera ágætt að mestu leyti en skipt var um rúður að mestu leyti fyrir um 15 árum. 
Hús að utan þarfnast skoðunar og virðist vera komin tími á viðhald utan húss. 

Vakin er athygli á að forkaupsréttur er á milli íbúða. 

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf. í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1992
46.7 m2
Fasteignanúmer
2152387
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.100.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álfhóll 4
Skoða eignina Álfhóll 4
Álfhóll 4
640 Húsavík
183.9 m2
Einbýlishús
623
378 þ.kr./m2
69.500.000 kr.
Skoða eignina Höfðavegur 4-3 íbúðir
Höfðavegur 4-3 íbúðir
640 Húsavík
198.2 m2
Fjölbýlishús
834
327 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Útgarður 6
Bílastæði
Skoða eignina Útgarður 6
Útgarður 6
640 Húsavík
127.7 m2
Fjölbýlishús
413
548 þ.kr./m2
70.000.000 kr.
Skoða eignina Höfðavegur 14
Skoða eignina Höfðavegur 14
Höfðavegur 14
640 Húsavík
163.2 m2
Einbýlishús
614
Fasteignamat 34.500.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache