Hrafnkell og Atli á LIND kynna þessa einstaklega björtu og vel skipulögðu tveggja herbergja endaíbúð við Skipasund 39.
Eignin er með aukinni lofthæð, glugga á þrjá vegu og góðum svölum til suðurs.
Baðherbergið og gólfefni voru endurnýjuð 2024.
Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í skóla, verslun og alla helstu þjónustu.
Eignin skiptist í: anddyri, stofu/borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, svalir og geymslu.
Allar nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali / hrafnkell@fastlind.is / 690 8236
Atli Karl Pálmason Aðstoðarmaður fasteignasala / atli@fastlind.is / 662 4252
Nánari lýsing:
Anddyrið er með opnu fatahengi, harðparket á gólfi og tengir önnur rými eignar.
Stofa/borðstofa er bjart rými með stórum glugga til austurs og suðurs og útgengt á svalirnar. Harðparket á gólfi.
Eldhúsið er með hlýlegri eldri viðarinnréttingu, flísar á milli borðs og skápa. Dúkur á gólfi og góður gluggi til suðurs.
Baðherbergið er nýlega endurnýjað á afar smekklegan máta. Flísalagt í hólf og gólf, góður skápur undirvask og speglaskápur að ofan, upphengt salerni, sturta, handklæðaofn. Gluggi til með opnalegu fagi til vesturs.
Svefnherbergið er rúmgott og bjart með innbyggðum fataskápum. Harðparket á gólfi og gluggi til austurs og suðurs.
Geymslan er í kjallara og birt stærð 3,9 fm.
Sameiginlegt þvottahús og þurrkaðstaða þar sem hver og einn er með sína eigin vél.
Framkvæmdir sem farið hefur verið í:
2023 Gluggaskipti á mið og efstu hæð. Skipt um útidyrahurðar. Slökkvitæki í sameign. Snjallmælir settur upp
2013 Þakviðgerð.
2012 Drenað Þakviðgerð Ruslaskýli sett upp Stigapallur múraður Grindverk lagað og málað Möl og hellulagt Gólf á þvottahúsi málað Rúðuskipti í kjallara
2011 Lagnir myndaðar. Múrviðgerð.
2009 Þak og skipt um rennur, niðurföll, kvistur uppfærð á norðurhlið.
Húsið er ein hæð, kjallari og ris og það eru fjórar íbúðir í húsinu.
Hlufallstala í húsi og lóð er 28,58%
Skipasund 39, 104 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 201-8607 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Húsið er forskalað timburhús. Eignin Skipasund 39 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-8607, birt stærð 57.0 fm.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.