LIND fasteignasala kynnir bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérafnotareit í suður við Dalaland 3 í Fossvogi. Stofa og eldhús í opnu rými, rúmgott herbergi með fataskáp. Útgengi úr stofu á timburverönd í suður. Eignin er skráð 45,5 fm hjá Þjóðskrá Íslands en sérgeymslu í sameign virðist vanta inn í skráninguna. Björt og falleg eign á besta stað í Fossvoginum þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu. Forstofa/hol: Parket á gólfi, stór fataskápur.
Eldhús og stofa: Parket á gólfi, eikarinnrétting með góðu skápaplássi, útgengi á suðurverönd.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, innrétting með handlaug, baðkar með sturtuaðstöðu. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Sérgeymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Framkvæmdir undanfarið skv. upplýsingum frá húsfélagi: Gluggi við aðalinngang lagaður ca. 2014.
Drenað var með norðurhlið ca. 2016.
Þakjárn endurnýjað 2022. Þakrennur hafa einnig verið endurnýjaðar.
Ofnar í íbúð endurnýjaðir ca. 2020.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.