Fallega og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi. Skjólgóðar suður-svalir.* Skjólgóðar suður-svalir
* Skipt um þakdúk í desember 2023
* Þvottahús innan íbúðar Nánari upplýsingar veita:Evert Guðmundsson Lgf. í s: 823-3022 eða evert@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur
Birt stærð eignar samkv. Fasteignaskrá Íslands er 70,1 fm og er íbúðarrýmið sjálft 62,9 fm og geymsla á fyrstu hæð 7,2 fm Eignin skiptist í forstofu, þvottahúsi, samliggjandi stofu og borðstofu, eldhúsi, rúmgóðu svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.
Forstofan er með fataskáp og parket á gólfi.
Stofan /
borðstofan er rúmgóð og björt með parket á gólfi og útgengi út á rúmgóðar suður-svalir.
Eldhús er með góðri hvítmálaðri innréttingu með tengi fyrir uppþvottavél. Bakaraofn, viftan og helluborð var allt endurnýjað árið 2021. Parket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi
Baðherbergi er með baðkari með sturtu, upphengdu salerni, innréttingu undir og við handlaug og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahúsið er innan íbúðar og eru flísar á gólfi.
Á jarðhæð er góð
hjólageymsla í sameign og á fyrstu hæð er 7,2 fm
sérgeymslu.Skipt var um þakdúk á húsi númer 11 í desember 2023.Garður er sameiginlegur
Um er að ræða mjög rúmgóða og bjarta íbúð á góðum stað í Grafarholtinu í hverfi Sæmundarskóla einnig eru leikskólar líka í göngufæri. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.