DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 23. nóv. 2026

Jakasel 25

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
255.9 m2
8 Herb.
3 Baðherb.
Verð
165.900.000 kr.
Fermetraverð
648.300 kr./m2
Fasteignamat
139.750.000 kr.
Brunabótamat
126.600.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1985
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2057333
Landnúmer
113295
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Hreiðar Levý lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna glæsilegt og vel staðsett einbýlishús á þremur hæðum 255,9 fermetra einbýlishús á þremur hæðum með 2 auka íbúðum. Annarsvegar 38,1fm, 2ja herbergja innréttuð íbúð í innbyggðum bílskúr með sérinngangi og hinsvegar stúdíóíbúð með sérinngangi á jarðhæð. Auk birtu fermetranna fylgja eigninni tveir geymsluskúrar (10 fm og 20 fm) og 10 fm gróðurhús á lóð sem eru ekki inni í skráðri fermetratölu eignarinnar. Samtals er því um að ræða um 295,9 fm af nýtanlegu rými. Eignin stendur á fallegri hornlóð og hefur mjög góða aðkomu. Á efri hluta lóðarinnar er rúmgott, hellulagt bílaplan fyrir allt að 5 bíla, þar sem búið er að koma fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla. Á neðri hæð hússins er innbyggður bílskúr sem er búið að innrétta sem 2ja herbegja íbúð með sérinnigang. Einnig er búið að útbúa aðra stúdíóíbúð á jarðhæð með sérinngangi hliðiná 2ja herbergja íbúðinni. Sér hellulagt bílaplan fyrir aukaíbúðir fyrir framan inngangshurðir. Möguleiki er á góðum leigutekjum.

KLIKKIÐ HÉR TIL AÐ GANGA Í GEGNUM HÚSIÐ Í 3D

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Eignin hefur fengið jafnt og gott viðhald í gegnum tíðina. Húsið var málað síðastliðið sumar og sett nýtt handrið á svalir hússins. Kaldavatnslagnir frá baðherbergi efri hæðar voru endurnýjaðar nýlega og nýtt parket var lagt á aðalhæðina ásamt því að endurbæta íbúð í bílskúr. 

Eignin Jakasel 25 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 205-7333, birt stærð 255.9 fm.
 Auk birtu fermetranna fylgja eigninni tveir geymsluskúrar (10 fm og 20 fm) og 10 fm gróðurhús. Samtals er því um að ræða 295,9 fm af nýtanlegu rými.

Eignin stendur á 680,0 fermetra hornlóð. Lóðin er einkar gróin, falleg og vel hirt með stórum trjám og runnum sem veita mikið skjól. Við inngang hússins er yfirbyggt anddyri og hellulögð verönd. Garðurinn er girtur af með stílhreinum dökkum timburskjólveggjum. Í garðinum er skjólgott útisvæði með heitum potti, hellulagðri verönd og timburpalli með útsýni yfir garðinn. Auk þess eru rúmgóðar svalir á tveimur hæðum hússins.

Jakasel er róleg og fjölskylduvæn gata í Seljahverfi. Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttaaðstöðu ÍR og fallegar gönguleiðir í Elliðaárdalnum og nágrenni.


Nánari lýsing:
Aðalhæð:

Forstofa: Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með fatahengi og fatskáp.
Svefnherbergi:​ Rúmgott, með fataskáp.​​​​​​
Gangur: Tengir saman flest rými hæðar. Stílhreinn stigi með svörtu rimlahandriði tengir hæðirnar saman.
Gestasalerni: Innaf gangi. Upphengt salerni, hvít innrétting með skálavaski ofan á, spegill með innbyggðri lýsingu fyrir ofan vask. Gluggi með oppnanlegu fagi.
Stofa og borðstofa: Rúmgóð opin og björt samliggjandi stofa og borðstofa. Úr borðstofu er útgengt á svalir sem ná meðfram hlið hússins. Góð tenging við eldhús.
Eldhús: Einkar smekklegt, bjart og vel skipulagt með skemmtilegum karakter, góðu vinnu- og skápaplássi ásamt góðum borðkrók með bólstruðum bekk við glugga. Rýmið tengist bæði borðstofu og gangi og býr yfir notalegri stemningu. Dökk innrétting með ofn í vinnuhæð, innbyggðu helluborði og vaski. Aðstaða fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Góð tenging við stofu.

Efri hæð:
Gengið er upp á efri hæð hússins um fallegan teppalagðan stiga. Aukin lofthæð er á hluta efri hæð hússins og einnig er hluti undir súð þannig að gólfflötur er stærri en uppgefið er í fermetrafjölda.


Sjónvarpsstofa: Opið, bjart og notalegt alrými í miðju hæðarinnar sem nýtist í dag sem sjónvarpsstofa. Fallegt rými í stórum kvistglugga með svörtum römmum. Innbyggðar hillur undir súð.
Hjónaherbergi: Rúmgott með sérsmíðuðum, svörtum fataskápum sem fylgja súðinni. Úr herberginu er útgengt á svalir á gafli hússins með fallegu útsýni yfir hverfið og gróinn garðinn.
Svefnherbergi III: Rúmgott svefnherbergi með fataskáp.
Svefnherbergi IV: Rúmgott herbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Glæsilegt, rúmgott og endurnýjað baðherbergi með ljósum marmaraflísum á gólfi og í sturtu. Þar er bæði baðkar með svörtum blöndunartækjum og „walk-in“ sturta með glerskilrúmi, innfelldum svörtum blöndunartækjum og regnsturtuhaus. Dökk viðarinnrétting með tvöföldum vaski, svörtum blöndunartækjum, háum hliðarskáp og stórum hringlaga spegli. Vegghengt salerni með svörtum flísalögðum kassa, svartur handklæðaofn, tengi og aðstaða fyrir þvottavél.

Jarðhæð: Tvær aukaíbúðir. Annarsvegar stúdíóíbúð. og hinsvegar 2ja herbergja íbúð. Báðar íbúðir með sérinngang og sér bílastæði á hellulögðu bílaplani fyrir framan innganga.

Aukaíbúð í bílskúr:

Á neðstu hæð hússins er vel skipulögð og smekkleg tveggja herbergja aukaíbúð (innréttuð í bílskúr) með sérinngangi af hellulagðri innkeyrslu. Eikarparket er á gólfum í alrými og svefnherbergi.

Forstofa: Flísalögð og rúmgóð með fatahengi.
Alrými: Samliggjandi stofa og borðstofa.
Eldhús: Ljós innrétting með efri og neðri skápum ásamt vask. Flísar á milli skápa. Aðstaða fyrir ísskáp.
Stofa:, í einu rými, parketlagt með hvítri ikea innréttingu, viðarborðplötu og borðaðstöðu.
Svefnherbergi: Rúmgott með inngengu fataherbergi með innréttingum.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með hvítri skúffuinnréttingu og stórum innfeldum vask, hringlaga spegli með baklýsingu fyrir ofan vask. Vegghengt salerni með mósaíkflísalögðum kassa, sturtuklefi með glerhurðum ásamt aðstöðu og tengi fyrir þvottavél. Gluggi í baðherbergi með opnanlegu fagi.

Stúdíóíbúð á jarðhæð. Á jarðhæð, björt og vel skipulögð stúdíóíbúð með sérinngangi.

Alrými: Komið er inn á flísalagðan inngang sem opnast inn í alrými með ljósu parketi á gólfum. Stórir svartir gluggar í tvær áttir hleypa mikilli náttúrulegri birtu inn í rýmið. 
Eldhús: Nett innrétting með skáp, skúffum og opnum efri hillum. Innfelldur vaskur á neðri einingu. Aðstaða fyrir ísskáp.
Baðherbergi: Innaf alrýminu (bak við rennihurð) er flísalagt baðherbergi með hvítum veggflísum, lítilli hvítri vaskinnréttingu, spegli fyrir ofan vask og upphengdri hillu á milli vasks og spegils. Sturta með sturtuhengi.

Lóð:
Eignin stendur á einkar fallegri, gróinni og skjólsælli hornlóð þar sem lóðin er hönnuð í nokkrum aðskildum og vel nýttum rýmum í kringum húsið. 

Aðkoma og tvöfalt bílaplan: Á efri hluta lóðarinnar er mjög rúmgott, hellulagt bílaplan fyrir allt að 5 bíla, girt af með stílhreinum dökkum timburrimlaveggjum. Þar hefur verið komið fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla á vegg geymsluskúrsins. Frá bílaplaninu liggur hellulögð stétt að aðalinngangi hússins. Á neðri hluta lóðarinnar er einnig hellulögð innkeyrsla að inngangi aukaíbúðanna.

Skjólgóð verönd og heitur pottur: Á milli hússins og efra bílaplansins er afgirtur og sérlega skjólsæll garður með grasflöt og hellulagðri verönd með heitum potti.
Timburpallur og gróðursvæði: Á sólríkum stað við hlið hússins er fallegur timburpallur sem stendur í grónu og náttúrulegu umhverfi umkringdur stórum trjám, birki, greni og runnum. Frá pallinum er gott útsýni yfir garðinn og tengist hann vel hellulögðum göngustígum sem liggja um lóðina.
Svalir á tveimur hæðum: Á efri hæð (risi) eru svalir á gafli hússins og á aðalhæðinni (1. hæð) eru rúmgóðar svalir með svörtu handriði sem ná meðfram hlið hússins yfir neðri innkeyrsluna.
Tveir geymsluskúrar og gróðurhús: Auk birtu fermetranna fylgja eigninni þrjár aukabyggingar á lóðinni (samtals um 40 fm sem ekki eru inni í birtri fermetratölu eignarinnar):
20 fm geymsluskúr við neðri innkeyrslu hússins með bárujárnsþaki og dökkri timburklæðningu.
10 fm geymsluskúr við efra bílaplanið, klæddur dökkum liggjandi timburpanel í stíl við skjólveggina, með útiljósi, viðarhurð og rafbílahleðslustöð.
10 fm gróðurhús í skjólsælu horni lóðarinnar (bak við húsið).

Staðsetning og nánasta umhverfi:

Eignin er afar vel staðsett í rólegri og fjölskylduvænni botnlanga- og íbúðagötu við Jaðarsel í grónu Seljahverfi, rétt við mörk Reykjavíkur og Kópavogs. Staðsetningin sameinar kyrrð í grónu hverfi og frábærar samgöngur um allt höfuðborgarsvæðið.

Útivist og náttúra: Stutt er í stórkostleg útivistarsvæði á borð við Elliðaárdalinn í norðri og Elliðavatn, Heiðmörk og Guðmundarlund í suðaustri, þar sem finna má óteljandi göngu-, hlaupa- og hjólaleiðir.

Þjónusta, verslun og afþreying: Frá Jaðarseli er örstutt að keyra í alla helstu verslun og þjónustu, meðal annars í Mjóddina, Smáralind og verslanir við Salaveg og Dalveg. Einnig er stutt í sundlaugar og íþróttaaðstöðu í hverfinu og nágrenni (t.d. ÍR og Árbæjarlaug).

Samgöngur: Mjög greiðar samgönguæðar eru í næsta nágrenni (Breiðholtsbraut, Arnarnesvegur og Reykjanesbraut) sem gerir allar ferðir um höfuðborgarsvæðið fljótlegar og þægilegar.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/04/201447.900.000 kr.21.409.000 kr.255.9 m283.661 kr.Nei
13/03/201347.450.000 kr.40.000.000 kr.255.9 m2156.311 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heiðarbraut 39
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Opið hús:24. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Heiðarbraut 39
Heiðarbraut 39
300 Akranes
234 m2
Einbýlishús
725
512 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsbyggð 15
Heitur pottur
Skoða eignina Dalsbyggð 15
Dalsbyggð 15
210 Garðabær
242,2 m2
Einbýlishús
514
906 þ.kr./m2
219.500.000 kr.
Skoða eignina Austurkór 87
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Austurkór 87
Austurkór 87
203 Kópavogur
250,8 m2
Einbýlishús
54
789 þ.kr./m2
198.000.000 kr.
Skoða eignina Tungusíða 7
Skoða eignina Tungusíða 7
Tungusíða 7
603 Akureyri
265,8 m2
Einbýlishús
513
508 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin