DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 11. sept. 2026

Austurholt 8

RaðhúsVesturland/Borgarnes-310
276.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
83.900.000 kr.
Fermetraverð
303.655 kr./m2
Fasteignamat
78.500.000 kr.
Brunabótamat
114.750.000 kr.
Mynd af Gunnlaugur Hrannar Jónsson
Gunnlaugur Hrannar Jónsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
8990720Eignalisti
Byggt 1983
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2110949
Landnúmer
135436
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
4
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar að mestu
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Járn endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd og svalir
Upphitun
Hitaveita ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala Borgarnesi kynna:

Stórt eldra endaraðhús með mikla möguleika, rúmgóðum einkagarði og fallegu útsýni við Austurholt í Borgarnesi.

Um er að ræða steinsteypt hús, fjögur til fimm svefnherbergi, tvo til þrjú baðherbergi ásamt stórri stofu með fallegu útsýni af rúmgóðum svölum, mjög stóru eldhúsi, góðum bílskúr, stórt bílastæði, sólpallur með heitum potti og gróinn garður á þrjá vegu við húsið.

Húsið er endaraðhús, stendur við dalverpi í götunni og því er næði gott bæði til norðurs og austurs. Einnig stendur eignin í hækkuðu landslagi sem veitir gott útsýni móti austri.

Húsið er á fjórum pöllum og skiptist í:
  • Jarðhæð telur forstofu, rúmgott eldhús með eldhúskrók.
  • Efri hæð telur stóra stofu með útgengi á austursvalir, eitt stórt svefnherbergi og baðhergi.
  • Neðri hæð sem snýr móti suðaustri, út í garð, telur þrjú svefnhergi, þvottahús og baðherbergi.
  • Kjallari, óskráður, undir eldhúsi og bílskúr, u.þ.b. 55 fm, lofthæð ca. 1,8 - 2 metrar, telur gott hol, eitt herbergi, geymslurými undir bílskúr og eitt herbergi sem inniheldur sturtu.
  • Birt stærð þriggja palla plús bílskúrs er samtals 221,3 fm og til viðbótar er svo kjallarinn, óskráður, u.þ.b. 50 fm, til viðbótar.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Eigandi hefur haldið húsinu í góðu viðhaldi, borið reglulega á timbur í gluggum, múrviðgert og málað húsi og er járn á þaki t.a.m. búið að endurnýja ásamt klæðningu í lofti á efri hæð ásamt nýjum loftapanel þar neðaní. Neysluvatnslögn frá eldhúsi og niður að inntaki hefur verið endurnýjuð. 

Fyrir utan ofangreint þá er eignin upprunaleg að mestu leiti og hefur mikla möguleika fyrir nýjan eiganda að móta framtíðina á marga vegu. Lofthæð er mjög góð t.d. á efstu hæð, jarðhæð og neðstu hæð en svo aðeins um 1,8 - 2 metrar í kjallara.

Nánari lýsing:
Lóð - mjög rúmgott bílastæði, góður sólpallur með heitum potti og svo teygir garðurinn sig frá innkeyrslu á þrjá vegu utan um enda hússins, mjög gróinn og fallegt útsýni.

Jarðhæð:
Andyri - flísalagt með fataskáp.
Eldhús - mjög rúmgott með stórri innréttingu, eyju með skápaplássi, helluborði og háf, bakaraofn í vinnuhæð og pláss fyrir góðan borðkrók, parket á gólfi.

Efri hæð:
Stofa - er mjög rúmgóð, hátt til lofts, stórir og bjarti gluggar með fallegu útsýni móti austri, gengið út á stórar svalir. 
Svefnherbergi - mjög rúmgott, góður gluggi með fallegu útsýni, góður fatskápur og parket á gólfi.
Baðherbergi - hefur verið endurnýjað að hluta, flísar á gólfi, upphengt nýlegt wc og vaskur, vantar sturtuklefann á baðhergið.

Neðri hæð:
Svefnherbergi - eru þrjú talsins, tvö minni og eitt stærra, parket á gólfum.
Baðherbergi - upprunalegt með flísum á gólfi, baðkari, wc, vaska og smá skáp.
Þvottahús/bakútgangur á lóð - flísar á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, hurð út á lóðina til austurs.

Kjallari:
Undir bílskúr - stór geymsla, steinsteypt gólf.
Hol - rúmgott með hillum, steinsteypt gólf.
Herbergi - lítill gluggi, steinsteypt gólf.

Bílskúrinn er um 19 fm, heitt og kalt vatn, góð lofthæð og geymsluloft að hluta, steinsteypt gólf.

Borganes er mjög fjölskylduvænt samfélag fallega staðsett með náttúruna allt um lykjandi. Öll helsta grunnþjónusta er til staðar, leik- og grunnskóli, íþróttaaðstaða, sundlaud, verslanir, veitingahús ásamt lögreglu, slökkvuliði og heilbrigðisstofnun. Auðvelt að stunda útivist og náttúrutengda afþreyingu á svæðinu og allt um kring, gott hesthúsahverfi fyrir hestafólk á svæðinu.

Óskráðir fermetrar sem gefnir eru í söluyfirliti eru eingöngu settir fram til upplýsingar fyrir kaupendur út frá notkunarmöguleikum eignarinnar.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
55 m2
Fasteignanúmer
2110949
Byggt 1983
19.3 m2
Fasteignanúmer
2110949
Byggingarefni
Steypa

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Engihjalli 1
Efsta hæð
Skoða eignina Engihjalli 1
Engihjalli 1
200 Kópavogur
97.4 m2
Fjölbýlishús
4
748 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 99
Opið hús:15. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hringbraut 99
Hringbraut 99
101 Reykjavík
53 m2
Fjölbýlishús
211
942 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Torfufell 33
Skoða eignina Torfufell 33
Torfufell 33
111 Reykjavík
56.8 m2
Fjölbýlishús
211
826 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina Ásatún 8
Skoða eignina Ásatún 8
Ásatún 8
600 Akureyri
83.5 m2
Fjölbýlishús
212
693 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin