Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Áshamar 77 íbúð 301 sem er 73,9 m2 eign á 3. hæð, þar af geymsla í kjallara skráð 3,4 m2. Svalir útfrá stofu, 2 svefnherbergi.
Áshamar 77 er glæsileg blokk í byggingu. Um er ræða 27 íbúða blokk með lyftu og upphituðum bílakjallara. Stæði í bílakjallara fylgir 23 íbúðum af 27. Góð bílastæði við blokkina. Allar íbúðirnar eru með mikilli lofthæð ca 270 cm. Eldhús innnréttingar verða frá Pro- Export, Hurðar frá Agli Arnassyni, Flísar verða frá Álfaborg, baðherbergi verða með flísum á gólfi og tveim veggjum. Flísar á gólfi í forstöfu og þvottahúsi, gólfhiti í öllum íbúðum. Stefnt er á að hægt verði að afhenda eignirnar í lok árs 2027. Íbúðir 101 og 201 er eins skipulagðar - SELDAR
Íbúðirnar eru fjölbreyttar að stærð og herbergjafjölda og henta bæði einstaklingum og fjölskyldum. Sólpallar verða á eignum 1. hæðar og á 2. og 3. hæð eru svalir. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla og sér geymsla fylgir mörgum íbúðanna. Frábær staðsetning þar sem stutt er á golfvöllin og í fallegar gönguleiðir. Blokkin stendur hátt á góðum útsýnisstað og eru margar íbúðanna með glæsilegu útsýni. Frábær kostur fyrir þá sem vilja komast í viðhaldslétta eign með lyftu og upphituðum bílakjallara.Þrívíddarmynd af skipulag eignar.Nánari upplýsingar á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105. Einnig eru nánari upplýsingar hér.Nánari Lýsing: Andyri: Flísar á gólfi, skápur
Stofa: Steypt gólf, útgengt á svalir
Eldhús: Steypt gólf, innrétting frá Pro- Export, borðplata úr steini, innrétting í ljósum lit.
Baðherbergi: Flísar á gólfum og tveim veggjum, upphengt wc, innrétting, walk in sturta
Svefnherbergi: Steypt gólf, skápur
Svefnherbergi: Steypt gólf, skápur
Svalir: Steypt og slípað gólf, handrið eftir teikningum
Geymsla: 3,4 m2 geymsla í kjallara, steypt gólf
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.