Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. íbúð á 3. hæð (upp tvo stigapalla) að Bogahlíð 17 í Hlíðunum í Reykjavík. Frábær staðsetning. Aftan við hús er opið gróið svæði með leiktækjum. Göngufæri er í leik-, grunn- og framhaldsskóla. Einnig er örstutt í Kringluna og niður að Klambratúni, í miðbæinn og upp í Öskjuhlíð.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og geymslu. Þvottahús er í sameign. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 72,8 m2.**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN !*SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SKOÐUN SUNNUD. 18. MAÍ Nánari lýsing:
Forstofa er inn af sameiginlegum stigagangi. Eingöngu er gengið upp tvo stigapalla. Eldvarnarhurð er inn í íbúð. Innan íbúðar er komið inn á parketlagt hol með fatahengi.
Herbergi I er án fataskápa. Fín stærð á herbergi. Parket á gólfi.
Herbergi II er stærra herbergið. Hvítir eldri innbyggðir fataskápar fylla einn vegg. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari með sturtu. Salerni, handlaug og skáp. Dúkur á gólfi.
Eldhús er með útgengi út á svalir til austurs. Eldri innréttingu á öðrum langveggnum. Efri skápar ná upp í loft. Milli efri og neðri skápa eru mósaík flísar. Dúkur á gólfi.
Stofa er með gluggum til vesturs. Parket á gólfi.
Þvottahús og þurrkaðstaða er í sameign á efstu hæð.
Geymsla er sér í sameign á efstu hæð. Merkt 0505. Birt stærð 3,7 m2.
Hjóla- og vagnageymsla er í skúr úti á lóð.
Bílastæði eru framan við hús meðfram Bogahlíð.
Bogahlíð 17 er steinsteypt, 8 íbúða hús, tvær íbúðir á hverri hæð. Teiknað af Þorleifi Eyjólfssyni arkitekt. Eignarhlutur íbúðar í nr. 17 er 11,82%, en í báðum matshlutum 6%.
Endurbætur á Bogahlíð 17:2024 - skipt um allar lagnir í botnplötu húss, drenað við húsið og skólplögn lagfærð út í brunn.
Eldvarnarhurð í íbúð er nýleg.
2019 - lagt nýtt dren og skipt um flesta glugga á A-hlið húss. Gluggar á V-hlið þéttaðir.
Fyrir um tíu árum var þak yfirfarið (endurneglt og snjóstopparar settir upp).
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-