LIND fasteignasala & Páll Konráð kynna í einkasölu: Háteigsvegur 22, 63.3 fm, 3ja herbergja íbúð með sérinngang við Háteigsveg 22. Íbúðin er talsvert endurnýjuð, ma. er búið að setja gólfhita íbúðina og flota, ný gólfefni eru í allri íbúðinni. Eignin er mjög vel staðsett miðsvæðis í 105 með skóla og alla þjónustu í næsta nágrenni.
Eignin er með sérinngang og skiptist í tvö svefnherbergi, stofu, baðherbergi, eldhús og geymslu í sameign.
Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 201-1600, nánar tiltekið eign merkt 00-01, birt heildarstærð 63.3 fm. Þar af er íbúðin skráðir 60,3 fm og sérgeymsla í sameign merkt er skráð 3 fm.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
Nánar um eignina:
Anddyri með flísum á gólfi og fatahengi. Baðherbergi með flísum,sturtu og handklæðaofni, ný innrétting undir vask ásamt blöndunartæki.
Úr anddyri er komið inn á parketlagðan gang með fatahengi.
Barnaherbergi á vinstri hönd er parketlagt með glugga..
Stofa á hægri hönd er björt og rúmgóð, parketlögð. Búið er að klæða vegg með hljóðdempandi viðarplötum.
Eldhús opið inn í stofu með endunýjaðri hvítri innréttingu, límtrésborðplötu og glerhurðum í eftri skápum. Nýleg eldavél/bakarofn.
Hjónaherbergi er innst rúmgott með parketi og fataskáp, Skipt um glugga og gler árið 2024.
Geymsla er í sameign. Sameiginlegt þvottahús, hvorutveggja innangengt úr íbúð.
Sólpallur fyrir utan stofu.
Gólfhiti settur í íbúðina 2021. Nýtt parket lagt 2021. Þak endurnýjað 2012. Endurnýjað glugga og gler árið 2024.
Sérlega fjölskylduvæn staðsetning og stutt í fallegar gönguleiðir, útivist, alla þjónustu sem og verslun, skóla og íþróttir.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.