Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega 139,7 fermetra 5 herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) með stórkostlegu sjávarútsýni og stórum flísalögðum svölum til suðvesturs í vönduðu álklæddu og litlu fjölbýlishúsi við Hallakur 2a í Garðabæ.
Allar innréttingar íbúðarinnar ná upp í loft, granít er á borðum í eldhúsi og baðherbergi og gluggar eru á baðherbergi og þvottaherbergi.
Mögulegt væri að útbúa 4. svefnherbergið úr annarri stofu íbúðarinnar.
Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð og með fataskápum.
Hol, flísalagt.
Eldhús, opið við hol, mjög bjart og rúmgott með fallegu útsýni til suðausturs. Miklar eikarinnréttingar í eldhúsi með graníti á borðum, gleri á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Fast matarborð úr graníti í eldhúsi.
Samliggjandi stofur, stórar, flísalagðar og bjartar með virkilega fallegu sjávarútsýni, að Bessastöðum, Reykjanesi og víðar. Úr stofum er útgengi á stórar flísalagðar svalir til suðuvesturs með frábæru útsýni.
Sjónvarpshol, flísalagt og opið við stofur og svefngang.
Svefngangur, flísalagður.
Barnaherbergi I, flísalagt og rúmgott með fataskápum.
Barnaherbergi II, flísalagt og stórt, með fataskápum.
Þvottaherbergi, með glugga og gólfhita, flísalagt gólf og innrétting.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, rúmgott og með gólfhita. Baðkar með flísalögn í kring, flísalögð sturta og innrétting með graníti á borði og spegli með lýsingu í.
Hjónaherbergi, flísalagt og stórt með miklum fataskápum á heilum vegg og virkilega fallegu sjávarútsýni.
Í kjallara hússins eru:
Sérgeymsla, 14,7 fermetrar að stærð.
Sameiginleg hjólageymsla, með útgengi á lóð.
Sameign hússins er mjög snyrtileg og velumgengin.
Húsið að utan er klætt með áli og er því viðhaldslítið.
Lóðin er fullfrágengin með helllulögðum stéttum með hitalögnum undir, góðri aðkomu og bílastæðum. Baklóð hússins er afgirt með stórri tyrfðri flöt.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í Akralandinu í Garðabæ þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, FG, verslun Krónunnar, fallegar gönguleiðir og út á aðalbrautir.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is