RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Falleg og björt 3ja herbergja útsýnisíbúð á 4.hæð í lyftuhúsi. Húsið er teiknað af Einari Sveinssyni en það skartar stórum og góðum gluggum með útsýni yfir Faxaflóann, Esjuna og upp til fjalla.
3D - SKOÐAÐU EIGNINA Í ÞRÍVÍDD HÉR
- Eldhús endurnýjað 2024
- Baðherbergi endurnýjað 2018 (innrétting og blöndunartæki 2024)
- Hvíttuð eik (viðarparket) 2018
- Eldhúsgólf og hol flísalagt 2016
- Vel viðhaldið hús (Sjá framkvæmdasögu neðst í lýsingu)Nánari lýsing: Eignin skiptist í forstofu/hol, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og stofu með útgengi út á sólríkar suðursvalir. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign og er hún 6,1 m². Þar að auki er sérgeymsla fyrir framan inngang að íbúð sem ekki er inni í fermetrafjölda og er mjög rúmgóð. Tvö þvottahús eru í sameign.
Komið er inn í
forstofu/hol sem tengir saman öll rými íbúðarinnar.
Í
eldhúsi er ný eldhúsinnrétting (2024) og útsýni er út á Faxaflóa og Esjuna. Flísar á milli skápa, bakaraofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Stæði fyrir vínkæli og morgunverðaraðstaða.
Baðherbergi var gert upp af múrarameistara í desember 2018, flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu, skápur og spegill fyrir ofan handlaug og rúmgóður innbyggður eldri skápur. Blöndunartæki og innrétting endurnýjuð 2024.
Tengi fyrir þvottavél er til staðar í innréttingu fyrir utan baðherbergið.
Stórt hjónaherbergi með innbyggðum skápum á heilum vegg og útsýni út á Faxaflóa og Esjuna.
Innst í holi er góður innbyggður fataskápur fyrir yfirhafnir og skó.
Stofa er björt með stórum gluggum og útgengi út á sólríkar suðursvalir með útsýni niður að höfn og upp í Bláfjöll.
Barnaherbergi bjart með stórum glugga. Milli stofu og barnaherbergis eru tekk rennihurðir og því má annað hvort opna eða loka á milli stofu og svefnherbergis eftir hentisemi.
Bílastæði við húsið eru næg og eru bæði fyrir framan og aftan hús (aðkoma frá Laugarnesvegi).
Húsið - framkvæmdir2025 Skipt um lamir í opnanlegum gluggum ásamt því að læsing voru yfirfarnar og skipt eftir þörfum.
2024 Lyfta í sameign lagfærð.
2019 Sett nýtt teppi í stigagang, flísað í sameign og málað.
2017-2018 Hús sprunguviðgert og málað.
2010 - Þakkantur og þak endurnýjað.
2005 og 2006 Var farið í umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir á eigninni, allir gluggar endurnýjaðir (hægt er að snúa gluggum við til að framkvæma gluggaþrif), svalahurðir og hurðir að geymslugöngum. Einnig farið í steypuviðgerðir og málun.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is