RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja, 78 fm herbergja íbúð við Flókagötu 6 í Reykjavík. Vel staðsett íbúð með góðum suður svölum þar sem stutt er í helstu þjónustu. Sérbílastæði sem tilheyrir eigninni.Smelltu hér til að sækja söluyfirlit samstundis. Nánari lýsing:Fallegur bogastigi er upp á efri hæð með stórum glugga, aðstaða fyrir fatahengi og skóskáp á stigapalli fyrir framan íbúð.
Komið er inn í
íbúð í björtu
holi/gang með geymsluskáp og aðgengi að geymslulofti og öðrum vistaverum íbúðar.
Tvö
svefnherbergi inn af
svefnherbergjagangi og þar af mjög rúmgott
hjónaherbergi með góðum fataskáp. Flísalagt
baðherbergi með sturtuklefa, hvítri innréttingu og opnanlegum glugga.
Stórt
eldhús með eikarinnréttingu, eldhústækjum og hvítum veggflísum milli skápa og
borðstofa í einu rými með útgangi út á stórar suður svalir.
Rúmgóð
stofa opin inn í frá
borðstofu og
eldhúsi.
Herbergi og
baðherbergi snúa í norður og stofa og borðstofa og eldhús í suður. Íbúðin er vel skipulögð.
Gólfefni: Eikarparket og flísar á
baðherbergi.
Sérgeymsla í kjallara ásamt sameiginlegu
þvottahúsi.
Lóð er rótgróin og stór með trjágróðri og snýr garður í suður.
Framkvæmdir síðustu ára:
2022: Skipt um þakrennur.
2021: Sameign máluð.
Fyrr: Skolprör sett í plast að hluta.
Íbúðin er á annarri hæð í þriggja íbúða húsi mjög miðsvæðis í Reykjavík og í göngufæri við miðbæinn, Klambratún og Skólavörðuholt.Frekari upplýsingar veitir Júlían J. K. löggiltur fasteignasali í síma 823 2641 eða á netfanginu julian@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-