DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:28. maí kl 17:30-18:00
Skráð 25. maí 2026

Bólstaðarhlíð 68

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
86.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
807.159 kr./m2
Fasteignamat
65.700.000 kr.
Brunabótamat
43.450.000 kr.
Mynd af Marta Jónsdóttir
Marta Jónsdóttir
Lögfræðingur
www.sunnafast.isEignalisti
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2013254
Landnúmer
103606
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Raflagnir
Endurnýjað
Frárennslislagnir
Þarfnast endurnýjunar að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Þarfnast viðhalds að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Snyrtilegar
Inngangur
Sameiginlegur
Sunna fasteignasala, Arnþór Jónsson viðskiptafr. og aðstoðamaður fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna bjarta og fallega 3ja herbergja enda íbúð á efstu hæð í 4. hæða húsi með frábæru útsýni við Bólstaðarhlíð 68, 105 Reykjavík.

Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með flísar á gólfi og með rúmgóðum skáp.
Stofa og borðstofa er í sama rými með parket á gólfi og útgengt á vestur svalir þar sem kvöldsólin fær að njóta sín. Af svölunum er opið og fallegt útsýni yfir gróið nærumhverfi og sameiginlega lóð með leiksvæði.
Eldhús er bjart með hvítum innréttingum og góðu vinnuplássi. Flísar á gólfi, viðarborðplötur og hlýlegur flísalagður veggur gefa rýminu notalegt yfirbragð. Eldhúsið er vel skipulagt með góðu skápaplássi og borðkrók
Hjónaherbergi með parket á gólfi og rúmgóðum fataskápum. Nýlegur gluggi og gler með útsýni til austurs
Barnaherbergi/Skrifstofa með parket á gólfi og nýlegum glugga og gleri.
Baðherbergi er snyrtilegt með ljósum flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtuaðstöðu og nýlegum gluggum og gleri.
Sérgeymsla með hillum er á jarðhæð/kjallara sameignar ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Þvottahús er í sameign þar sem hver íbúð er með sér pláss fyrir þvottavél og þurkara.
Lóðin er snyrtileg og vel við haldið með stórum grasflötum sem skapa rólegt og fjölskylduvænt umhverfi.
Eignin er staðsett á vinsælum stað í Hlíðahverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og samgöngur. Í nærumhverfinu má finna leik- og grunnskóla, þar á meðal Hlíðaskóli og Menntaskólinn við Hamrahlíð auk fjölbreyttrar verslunar og þjónustu í kringum Háaleitisbraut og Kringlusvæðið.
Stutt er í útivistarsvæði, líkamsrækt, sundlaugar og góðar göngu- og hjólaleiðir. Miðborg Reykjavíkur er í örstuttri fjarlægð og mjög góðar almenningssamgöngur eru í göngufæri sem gerir staðsetninguna bæði þægilega og fjölskylduvæna.

Viðhald síðastliðin ár innan íbúðar samkvæmt eiganda:
2013 Parket og flísar endurnýjað innan íbúðar.  Eldhúsinnrétting og ofn endurnýjað. Allt rafmagn endurnýjað, dregið nýtt í og skipt um rafmagnstöflu. 
2023 Niðurfallsrör milli svefn- og baðherbergis endurnýjuð. Múrviðgerð á austurvegg í svefnherbergi (innanvert). Nýr ofn í svefnherbergi

Viðhald á húsi samkvæmt eiganda:
2015 Þak, þakkantur og þakrennur voru yfirfarnar og lagfærðar.
2017 Múrviðgerðir á austurhlið hússins.
2018 Skipt um gler/glugga á austurhlið hússins og sú hlið máluð. 
2019 Framkvæmdar viðgerðir á norður- og suðurgafl hússins og það svo málað. Ný handrið sett á svalahandriðin og þau hækkuð. Inngangur í húsið brotinn niður og steyptur upp á nýtt og málaður.
2020 Múrviðgerðir og vesturhlið hússins máluð, tré- og blikkverk málað og skipt um gler og glugga eftir þörfum.
2024 Stigahús málað. Hreinsibrunnar á baklóð endurnýjaðir og stofnlögn á milli þeirra fóðruð. Viðgerð á kaldvatnslögn utan við hús (Veitur).

Nánari upplýsingar veitir Arnþór Jónsson viðskfr. og aðstoðarm. fasteignasala. í síma 663 3030 og netfanginu arnthor@sunnafast.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/11/201217.200.000 kr.18.700.000 kr.86.6 m2215.935 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 7C
Bílastæði
Opið hús:28. maí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Jöfursbás 7C
Jöfursbás 7C
112 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
805 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Silfursmári 2
Bílastæði
Skoða eignina Silfursmári 2
Silfursmári 2
201 Kópavogur
116.1 m2
Fjölbýlishús
312
1197 þ.kr./m2
139.000.000 kr.
Skoða eignina Eskihlíð 29
Opið hús:26. maí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Eskihlíð 29
Eskihlíð 29
105 Reykjavík
98.7 m2
Fjölbýlishús
413
941 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 3
3D Sýn
Skoða eignina Dalsbraut 3
Dalsbraut 3
260 Reykjanesbær
101.7 m2
Fjölbýlishús
413
638 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin