DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:01. apríl kl 17:00-17:30
Skráð 29. mars 2026

Háaleitisbraut 109

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
110.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.500.000 kr.
Fermetraverð
716.862 kr./m2
Fasteignamat
76.500.000 kr.
Brunabótamat
55.250.000 kr.
SJ
Sigríður Jónasdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2015277
Landnúmer
103815
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprnalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Búið að skipta um glugga og gler á norðurhlið og eldhúsglugga
Þak
Fengið viðhald eftir þörfum
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð við Háaleitisbraut 109 til sölu.
Fjölbýlishúsið Háaleitisbraut 109 – 111 var teiknað af Sigvalda Thordarson og er eitt af síðustu húsunum sem hann hannaði.
Íbúðin er á fjórðu hæð og stigagangurinn er hringlaga, algjör hönnunarperla.
Stofa og borðstofa með útgengi á svalir.
Svefnálma/gangur með þremur svefnherbergjum, baðherbergi og þvottahúsi.
Íbúðin er alls 110,5 fm, þar af er sérgeymsla á jarðhæð 5,5 fm.
Frábær staðsetning, stutt í alla þjónustu, Álftamýrarskóli og tveir leikskólar eru innan hverfis. Einstaklega barnvænt hverfi.
Víkingur er með öflugt íþróttastarf í Safamýri. Verslunarmiðstöðin Miðbær er í næsta nágrenni en þar má finna ísbúð og Mosfellsbakarí.
Skemmtilegur leikvöllur og fótboltavöllur fyrir aftan blokkina. Góðar samgöngur á svæðinu. Kringlan, Skeifan og Laugardalur eru í göngufæri.          

 
Nánari lýsing
 
Inngangur, komið er inn í hol með stórum innbyggðum skáp.
Eldhús er með upprunalegri innréttingu sem var hönnuð af Magga Jónssyni sem var fyrsti eigandi íbúðarinnar, gluggi og korkur á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með stórum gluggum og útgengi á stórar svalir  svalir sem eru meðfram allri suðurhlið íbúðarinnar.
Parket á gólfi og ljós viðarpanell í lofti. Stórt og bjart rými sem hentar vel til veisluhalda. Útsýni að Perlu úr stofu.
Þrjú svefnherbergi, hjónaherbergi með innbyggðum skáp og sérstöku fataherbergi, tvö barnaherbergi, annað mjög rúmgott.
Úr öllum svefnherbergjum er óhindrað útsýni yfir Esju, á veturna sést Friðarsúlan og norðurljósin njóta sín.
Baðherbergi með baðkari með sturtu. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús með vaski og máluðu gólfi. Pláss fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla í kjallara sem og tvær hjólageymslur, gengið er inn í aðra úr anddyri blokkarinnar en inn í hina frá garðinum.
Þá er geymsluskápur sem íbúðin á staðsettur rétt fyrir innan inngang blokkarinnar.
 
Baðherbergi var allt endurnýjað árið 2020 og plastparket sett á öll svefnherbergin.

Viðhald og endurbætur
Árið 2025 var framkvæmd múrviðgerð á austurhlið hússins, klæðning tekin af og málað í Sigvaldalitum.
Skipt var um glugga árið 2021. Þá voru allir gluggar í svefnherbergjum endurnýjaðir ásamt eldhúsglugga. Sama ár var norðurhlið hússins einnig máluð.
2011-2012 var farið í miklar viðgerðir á blokkinni,þá var gert við sprungur, múrskemmdir lagaðar, ryðguð járn viðgerð, svalagólf löguð og sílan borið,
blokkin máluð, bílskúrshurðir hreinsaðar og málaðar o.fl. 
Blokkin hefur almennt fengið viðhald eftir þörfum.
 
Virkt húsfélag er í húsinu og undanfarin ár hefur verið hafður sá háttur á að húsfélagið safni fyrir framkvæmdum áður en farið er í þær.

 Mjög góð og vinsæl staðsetning í Háaleitishverfi, stutt í allar áttir.

Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Jónasdóttir löggiltur fasteignasali í síma 661-4141, eða gegnum tölvupóstfangið sigridur@bjarturfasteign.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0,8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: Af kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv., kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/10/201943.450.000 kr.41.900.000 kr.110.9 m2377.817 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þverholt 9
Skoða eignina Þverholt 9
Þverholt 9
270 Mosfellsbær
155.1 m2
Fjölbýlishús
715
644 þ.kr./m2
99.950.000 kr.
Skoða eignina Baldursgata 17
Skoða eignina Baldursgata 17
Baldursgata 17
101 Reykjavík
35 m2
Fjölbýlishús
111
1426 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Efstaleiti 23
Bílastæði
Opið hús:31. mars kl 16:30-17:00
Skoða eignina Efstaleiti 23
Efstaleiti 23
103 Reykjavík
96.5 m2
Fjölbýlishús
413
1097 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 9 - 5 herbergja
Bílastæði
Dugguvogur 9 - 5 herbergja
104 Reykjavík
126.3 m2
Fjölbýlishús
514
815 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin