OPIÐ HÚS NK. MÁNUDAG, HÁLFFIMM TIL FIMM.
Sleipnir fasteignasala kynnir: Stór og vel skipulögð
SJÖ herbergja íbúð á efstu hæð í reisulegu fjölbýli að Þverholti 9 í Mosfellsbæ, hæð og ris - með flottu útsýni.
Miklum framkvæmdum utanhúss er nýlokið: Málað að utan núna í sumar eftir múrviðgerðir, skipt um gler að hluta og gluggar málaðir. Einnig stutt síðan þakið var tekið í gegn og skipt var um pappa og bárujárn. Mjög gott ástand á húsinu að utan eftir miklar endurbætur - eignin getur verið laus við kaupsamning.
Eignin skiptist í
forstofu, tvö svefnherbergi, rúmgott eldhús, þvottahús, baðherbergi, stofu og borðstofu sem er allt á
þriðju hæð. Uppi um stiga úr stofu er
gott sjónvarpshol og þrjú svefnherbergi. Auðvelt er að gera
sjötta herbergið á kostnað stofu á þriðju hæð ef fólk vill
. Íbúð, merkt 01-0301, birt stærð eignar er 155,1 m
2 hjá HMS.
NÁNARI LÝSING:Neðri hæð: Gengið er inn í
forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Þar við eru
2 svefnherbegi með dúk á gólfi og fataskáp.
Eldhúsið er stórt og bjart með ljósri innréttingu, tveimur útsýnisgluggum, borðkrók og gegnheilu eikarparketi á gólfi. Inn af eldhúsinu er svo þvottahúsið dúklagt.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með ljósri innréttingu með handlaug, salerni og baðkari.
Stofan og
borðstofan eru samliggjandi og bjartar þar sem hátt er til lofts, parketlagt með gegnheilli eik og útgengi á svalir (6,4 m
2) sem snúa til suðvesturs. Íbúðarareign á 3. hæð telst 104,1 m
2 og 4. hæð 51,0 m
2.
Efri hæð. Þegar komið er upp á efri hæð er gott sjónvarps og alrými parketlagt með gegnheilli eik, úr alrýminu er gengið inn í þrjú svefnherbergi; eitt stórt með dúk á gólfi og tvö minni með gegnheilli eik á gólfum og Velux þakgluggum.
Á stigagangi fyrir framan íbúðina er
sérgeymsla svo er hjólageymsla í sameign á jarðhæð ásamt sorpgeymslu.
Sameign er snyrtileg með nýju teppi á stiganum og nýlega málað. Fallegt útsýni er m.a. til Esjunnar, og Fellanna í næsta nágrenni.
Vel skipulögð og fjölskylduvæn eign á góðum stað, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla & íþróttir, heilsugæslu o.s.frv.Allar nánari upplýsingar veitir
Jóhannes E. Levy, Löggiltur fasteignasali, í síma
7721050 eða
tölvupósti