Nýtt á skrá! Opið hús - Hjarðarhagi 36 Reykjavík - sunnudaginn 29. júní klukkan 16:00 - 16:30
--- Afar falleg 3-4ra herb. útsýnisíbúð með bílskúr! ---
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega 125,2 fermetra 3ja-4ra herbergja íbúð á 4. hæð með bílskúr (24,0 fermetrar) og svölum til suðausturs við Hjarðarhaga 36 í Reykjavík. Íbúðin er vel staðsett á suðvestursenda hússins (með glugga á þrjár hliðar) og því afar björt. Stofa er stór með gluggum til suðausturs sem nýtur mikillar birtu. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni í dag og möguleiki er að bæta við fjórða svefnherberginu (á kostnað hluta stofu). Útgengi á suðaustursvalir sem snúa inn í bakgarð hússins.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á smekklegan hátt m.a. gólfefni, eldhús, baðherbergi, hurðar og skápar. Að sögn eiganda lauk umfangsmiklum utanhússviðviðgerðum á húsinu árið 2013. Steypuviðgerðir og viðgerðir á klæðningu, skipt um glugga og gert við eftir þörfum, þakkantur var endursteyptur og þak endurnýjað, dren endurnýjað og skólplagnir út frá húsinu, snjóbræðsla lögð og stétt endurnýjuð. Í sameigninni á Hjarðarhaga 36 var svo rafmagnstafla og raflagnir endurnýjaðar fyrir nokkrum árum.
Glæsilegt útsýni m.a. sjávar- og fjallasýn. Íbúðin skiptist þannig: Samliggjandi stofur, eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og hol. Auk þess fylgir geymsla með glugga í risi (hægt að nýta sem skrifstofu) og sér geymsla í kjallara. Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara. Stór gróin lóð með leiktækjum.
Um er að ræða frábæra staðsetningu við Hjarðarhaga í Reykjavík þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu (Melabúðin, Pizza107, Brauð&Co, Kaffi Vest, Hagavagninn o.s.frv.). Fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjóinn. Íþróttasvæði og sundlaug í næsta nágrenni. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð. Eftirsóttur staður í Vesturbænum.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með harðparketi og skápum.
Stofa: Er stór með með harðparketi á gólfum og góðum gluggum til suðausturs (verið að skipta um svalahurð og glugga við svalahurð). Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Afar fallegt útsýni út á sundin, til fjalla, yfir höfuðborgarsvæðið og að Hallgrímskirkju. Útgengi á svalir frá stofu.
Svalir: Snúa til suðausturs inn í bakgarð hússins. Glæsilegt útsýni líkt og að ofan greinir.
Eldhús: Með flísum á gólfi. Falleg eldhúsinnrétting með flísum á milli skápa. Stál Whirlpool bakaraofn, keramik helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Borðkrókur og gluggar til vesturs og suðurs (búið að endurnýja glugga við borðkrók).
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum skápum. Gluggar til suðurs og austurs (nýlegir gluggar) og innfelld lýsing í lofti.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með innb. sturtutækjum og glugga til vesturs. Handklæðaofn, skápar, upphengt salerni og innb. blöndunartæki við vask.
Bílskúr: Er 24,0 fermetrar að stærð. Inngangshurð og bílskúrshurð.
Geymsla I: Er staðsett í risi hússins. Möguleiki að nýta t.d. sem skrifstofu. Hluti undir súð. Parket á gólfi og þakgluggi.
Geymsla II/geymsluskápur: Er staðsett í kjallara með hillum.
Sameiginlegt þvottaherbergi: Er staðsett í kjallara. Snyrtilegt með máluðu gólfi. sér tenglar fyrir íbúðir.
Sameiginlegt þurrkherbergi: Er staðsett í kjallara. Málað gólf, vinnuborð, vaskur, þvottasnúrur og gluggar til vesturs.
Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í sameign.
Nánari upplýsingar:
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672