Hraunhamar kynnir einstaka þriggja til fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð (þriðja hæð) í þessu vinsæla húsi á jaðarlóð við Víðistaðatún í Hafnarfirði.
Íbúðin er skráð 97,7 fermetrar en er að hluta til undir súð og er því stærri að grunnfleti.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð undanfarin ár og er einstaklega björt og lofthæðin mikil sem gefur íbúðinni einstakan svip.Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, eldhús, borðstofa, setustofa og stofa, svalir, baðherbergi, tvö herbergi, þvottahús og milliloft. Auk þess er sérgeymsla og
reglubundin sameign.
Nánari lýsing eignarinnar:Forstofa með fatahengi.
Gott
hol. Þar er búið að koma fyrir millilofti sem ekki er skráð inn í fermetratölu eignarinnar.
Eldhús með smekklegri innréttingu og nýlegri borðplötu.
Fín
borðstofa og setustofa.Björt
stofa og þaðan er utangengt út á
suð-vestur svalir. Þaðan er glæsilegt útsýni yfir til suðurs og vesturs.
Tvö fín
svefnherbergi sem eru bæði að hluta til undir súð og eru bæði með fataskápum.
Flísalagt
baðherbergi með innréttingu, baðkari, þar er sturtuaðstaða og handklæðaofn.
Þvottahús með hillum, borði og skolvaski. Fínt geymsluloft yfir þvottahúsinu.
Í
kjallara er sérgeymsla auk reglubundinnar sameignar.
Gólfefni eru nýlegt harðparket og flísar.
Eigninni fylgir bílastæði með hleðslustöð.
Niðurlag: Þessi íbúð er einstök þar sem hver fermetri nýtist. Hún er mjög björt og vel umgengin og hefur verið mikið endurnýjuð undanfarin ár. Þetta er eign
sem vert er að skoða.
Húsið lítur vel út að utan og er sameignin til fyrirmyndar.
Frábær staðsetning við Víðistaðatún, stutt í skóla, leikskóla og verslanirNánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali í s.698-2603, hlynur@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is