Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - til sölu - Sundstræti 22 Ísafirði - Rúmgóð og falleg fimm herbergja íbúð á efstu hæð í fjórbýli ásamt bílskúr - Góð staðsetning og frábært útsýni út á sundin!
Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla, eldhús, stofa, borðstofa og sjónvarpsstofa, tvennar svalir og forstofa. Bílskúr er 28 m², geymsla í bílskúr. Íbúðin sjálf er skráð 139,4 m² að stærð.
Eignin er mikið endurnýjuð, búið að endurnýja þakjárn, gler og ofna meðal annars.
Sérinngangur á 1.hæð, þar er forstofa með flísum á gólfi, hiti í gólfi.
Teppalagður stigi upp í íbúðina.
Stigapallur með flísum á gólfi, góður fataskápur þar, einnig útgengt á litlar suðursvalir þar sem sólin skín fram á kvöld yfir sumartímann
Þvottaherbergi með flísalögðu gólfi og gott hillupláss.
Eldhús með fallegri innréttingu, spanhelluborð, ofn og háfur, tengi fyrir uppþvottavél, dúkur á gólfi, mikið skápapláss.
Opið úr eldhúsi inn í rúmgóða og bjarta stofu og borðstofu með góðu útsýni, parket á gólfi.
Sjónvarpsstofa með parketi á gólfi. Möguleiki á að útbúa auka herbergi þar ef þörf er á.
Svefnherbergisgangur með parketi, útgengt þar á stórar L-laga svalir með góðu útsýni.
Baðherbergi endurnýjað og stækkað 2010, flísar og hiti í gólfi, baðkar með sturtu, hvít innrétting og skápur.
Þrjú svefnherbergi, hjónaherbergi með parketi og stórum fataskáp.
Tvö minni herbergi með parketi á gólfi, fataskápur í öðru herberginu.
Bílskúr er skráður 28 m², bílskúrhurð með rafmagnsopnun, afstúkuð geymsla.
Steypt bílaplan og sameiginlegur garður.
Sér rafmagns og hitamælir, ekki er greitt í hússjóð.
Framkvæmdasaga seljenda:
Gler endurnýjað 2017. Þakjárn endurnýjað 2016. Húsið málað að utanverðu 2018.
Búið að skipta um ofna í íbúðinni. Baðherbergi endurnýjað 2010.