Fasteignaleitin
Skráð 27. mars 2025
Deila eign
Deila

Silfurgata 6

Tví/Þrí/FjórbýliVestfirðir/Ísafjörður-400
214 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
68.000.000 kr.
Fermetraverð
317.757 kr./m2
Fasteignamat
47.500.000 kr.
Brunabótamat
81.900.000 kr.
Byggt 1905
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2120259
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað fyrri eiganda
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Varmaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Silfurgata 6 Ísafirði - Falleg og mikið uppgerð stór íbúð í miðbæ Ísafjarðar, íbúðin telur í heildina 212 m², fjögur svefnherbergi, tvær stofur, tvö baðherbergi þvottahús/geymsla , forstofa og stigagangur. Ágætur afgirtur garður með stimplaðri stétt og köldum geymsluskúr. Húsið stendur á 147 m² eignarlóð.

Sérinngangur á 1.hæð, góð forstofa með flísum á gólfi, fatahengi og setubekkiur
Komið þaðan inn á stigagang með stiga bæði upp á efri hæð og niður í kjallara.

Efri hæð:
Komið upp góðan teppalagðan stiga, þar tekur við parketlagður gangur.
Ágætt svefnherbergi með parketi á gólfi. 
Eldhús með hvítiri innréttingu, fjalir á gólfi, stór eyja í miðju og stór frístandand eldavél með gashellum og ofni (fylgir ekki með), fastur eldhúsbekkur, eldhús innréttað og endurnýjað að stærstum hluta í kringum 2015, hluti innréttingar er frá 2010.
Baðherbergi með sturtuklefa, parket á gólfi og hiti í gólfi, upphengt salerni, vaskaskápur. Baðherbergi endurnýjað um 2018.
Hjónaherbergi með upprunalegum fjölum á gólfi og panil á veggjum, stórt fataherbergi innaf herberginu.
Stór og björt stofa og borðstofa, fallegur útskotsgluggi með góðu útsýni yfir bæinn, lakkað parket á gólfi.

Kjallari:
Kjallari var innréttaður 2012.
Komið niður stiga inn í opið rúmgott rými þar sem er hægt að hafa góða setu/sjónvarpsstofu og vinnurými, nýtt teppi á gólfi þar. Auðvelt er að losa stigann og opna stigaop til að flytja húsgögn á milli hæða.
Tvö rúmgóð svefnherbergi, gólf eru flotuð og lökkuð. 
Stórt baðherbergi með baðkari, upphengt salerni og innrétting, gólf er flotað og lakkað. 
Inn af baðherbergi er þvottahús og geymsla

Sér rafmagn og hiti, engin húsgjöld eru greidd.

Framkvæmdasaga eiganda:
Des 2024 - Forstofa flísalögð, stigagangur nýtt teppi - rafmagnsrofar endurnýjaðir.
2017 - Eldhús innréttað.
2018- Baðherbergi endurnýjað. Rafmagnstafla efri hæð. Stofa - nýr panill og einangrun á útveggi, loftið hækkað í borðstofu.
2018 - hjónaherbergi, fjalir pússaðar, loft tekin upp í herbergi og stofu, fataherbergi sett upp.
2014 - Sólpallur og geymslukofi
2012 - kjalli innréttaður, rafrmagn í kjallara endurnýjað - útitröppur gerðar upp.
2006 - (fyrri eigendur) húsið klætt að utan, þak endurnýjað, gluggar og karmar endurnýjaðir.



 
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/05/201211.250.000 kr.18.500.000 kr.214 m286.448 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sundstræti 22
Bílskúr
Skoða eignina Sundstræti 22
Sundstræti 22
400 Ísafjörður
167.5 m2
Hæð
513
412 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Sundstræti 39
Skoða eignina Sundstræti 39
Sundstræti 39
400 Ísafjörður
227.2 m2
Einbýlishús
514
286 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hrauntunga 1
Bílskúr
Skoða eignina Hrauntunga 1
Hrauntunga 1
400 Ísafjörður
194.7 m2
Parhús
423
348 þ.kr./m2
67.800.000 kr.
Skoða eignina Stekkar 21
Skoða eignina Stekkar 21
Stekkar 21
450 Patreksfjörður
200 m2
Einbýlishús
727
325 þ.kr./m2
65.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin