Fasteignaleitin
Skráð 16. sept. 2024
Deila eign
Deila

Mávahraun 21

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
266.9 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
188.500.000 kr.
Fermetraverð
706.257 kr./m2
Fasteignamat
168.700.000 kr.
Brunabótamat
124.700.000 kr.
Mynd af Erling Proppé
Erling Proppé
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2001
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Aðgengi fatl.
Sérinng.
Fasteignanúmer
2251750
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
ekki vitað
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ekki vitað
Þak
ekki vitað
Svalir
-
Upphitun
Gólfhiti / hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kvöð / kvaðir
Ath. Listaverk fyrir framan hús fylgir ekki eigninni. 
Erling Proppé lgf. & Remax kynna: Fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús á einni hæð á stórri lóð í þessari eftirsóttu götu við Mávahraun 21, miðsvæðis í Hafnarfirði.

Stiklað á stóru: 
-//- Sérsmíðaðar innréttingar í eldhúsi, forstofu og þvottahúsi, ásamt raf- og blöndunartækjum. 
-//- Hluti af þaki endurnýjað/breytt, burðarvirki ofl. 
-//- Innihurðar endurnýjaðar, úr Birgisson
-//- Baðherbergi í forstofu endurnýjað, flísar, innréttingar og tæki.
-//- Brit Stone Grey á öllum gólfum frá Ceramiche Coem, Ebson.
-//- Alrými máluð í fallegum hlýjum lit, Misty Calais úr Sérefni. 
-//- Loftskiptikerfi sett upp í húsinu


Allar nánari upplýsingar veitir Erling Proppé lgf.  //  690-1300 //  erling@remax.is   

Skv. FMR er húsið steypt að stærð 266,9 fm og þar af er bílskúrinn 60,3 fm. Húsið var byggt árið 2002, á stórri lóð sem nemur 1049 fm, sérlega gott aðgengi bæði að húsinu og að innan. 

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, sjónvarpshol, fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og tvöfaldan bílskúr með geymslulofti. 

Nánari lýsing: Gólfhiti í eldhúsi, borðstofu, forstofu, gestabaði og stóra baði. Innfelld lýsing víðsvegar. 

Forstofa/anddyri með fallegum sérsmíðuðum fataskápum, úr forstofunni er innangengt í bílskúr. 
Gestabaðherbergi er í forstofunni, fallegt baðherbergi þar sem flísarnar ganga upp sturtuvegginn, glerskilrúm, fyrirferðalítil innrétting, spegill, vegghengt salerni og handklæðaofn. 
Bílskúrinn er mjög rúmgóður, tvær innkeyrsluhurðir með rafdrifnum opnurum, heitt og kalt loft, mjög rúmgott geymsluloft. Í dag er skúrinn notaður sem tómstundarými en rýmið býður upp á mikla möguleika. 

Forstofan er lokuð af, þegar inn um hana er komið tekur við breiður gangur sem tengir saman öll rými hússins. 

Sjónvarpshol er í öðrum endanum á húsinu
Herbergi I er mjög rúmgott, með fallegum sérsmíðuðum skápum.
Hjónaherbergi er einnig mjög rúmgott, stórir og góðir skápar, útgengt út í garð.
Baðherbergi er stórt með glugga, nýleg innrétting, vegghengt salerni, flísalögð sturta og handklæðaofn. Flísarnar sem ganga í gegnum allt húsið eru til fyrir baðherbergið og fylgja þær með húsinu. 

Herbergi II & III eru á ganginum, bæði mjög rúmgóð.

Stofan er með aukinni lofthæð, innfelldri lýsingu, stórum gluggum sem gefa mikla birtu, úr stofu er útgengt út í suð/vestur verönd um fallega tvöfalda svalahurð með frönskum gluggum.
Eldhús er mjög rúmgott með miklu skápa og vinnuplássi. L laga innréttingin undir suður gluggunum í dökkgráu harmónar vel við eikina í skápunum þar á móti sem mynda eina heild frá gólfi upp í loft. Þar er að finna búrskáp, tækjaskáp, heilan innbyggðan kæliskáp, bakaraofn og combiofn í vinnuhæð. Hægt er að sitja við eyjuna. 
Borðstofan myndar hjarta hússins við enda eldhússins, rýmið er einstaklega bjart með stóran bogadreginn glugga sem snýr í suður. 
Þvottahúsið er innangengt úr eldhúsinu, góð innrétting með skápum, skúffum og góðu vinnuplássi. 
Loftskiptikerfi, Österberg frá Hagblikk, var sett upp í húsinu 2023.

*Loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu og síum sér til þess að nægu fersku lofti er veitt inn óháð veðurskilyrðum. Í flestum tilvikum er ferskt loft hitað með notuðu röku lofti sem dregið er út og kælir því ekki íverurýmið, með því er dregið úr orkutapi með varmaendurvinnslu. Minni óhreinindi berast inn vegna síunnar, hentar því vel fyrir þá sem eru með ofnæmi. Umhverfishávaði heyrir sögunni til þar sem gluggar/opnanleg fög geta verið lokuð án þess að draga úr fersku lofti. Einnig má stilla kerfið á þann hátt að vægur yfirþrýstingur sé í húsinu, hentar það mjög vel fyrir hús sem eru einangruð að innan og getur aukið líftíma einstakra viðhaldsþátta.

Lóðin er einstaklega falleg, gróin og vel skipulögð. Snjóbræðsla í innkeyrslunni sem rúmar 2-3 bíla og hjólhýsi á plani á enda hússins. Steyptur kantur er á austur og norður hlið hússins þar sem hægt væri að setja upp skjólgirðingu. 

Niðurlag: Einstaklega fallegt, bjart, rúmgott fjölskylduhús á einni hæð sem hefur verið mikið endurnýjað. Fallega ræktuð lóð með góðum veröndum, gróðri og skjólgirðingu. Húsið er vel staðsett, stutt í alla helstu verslun og þjónustu, skóla, leiksskóla, æfingasvæði FH og Fimleikafélagsins Björk. Eign sem hægt er að mæla með á eftirsóttum stað. 

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: 
Erling Proppé lgf.  // 690-1300 //  erling@remax.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/11/201884.450.000 kr.85.000.000 kr.266.9 m2318.471 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 2001
60.3 m2
Fasteignanúmer
2251750
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
22.050.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ljósaberg 40
3D Sýn
Skoða eignina Ljósaberg 40
Ljósaberg 40
220 Hafnarfjörður
294.8 m2
Einbýlishús
724
641 þ.kr./m2
189.000.000 kr.
Skoða eignina Sléttahraun 14
3D Sýn
Skoða eignina Sléttahraun 14
Sléttahraun 14
220 Hafnarfjörður
243.6 m2
Einbýlishús
724
739 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Sævangur 2
Skoða eignina Sævangur 2
Sævangur 2
220 Hafnarfjörður
228.6 m2
Einbýlishús
936
781 þ.kr./m2
178.500.000 kr.
Skoða eignina Spóaás 22
Bílskúr
Skoða eignina Spóaás 22
Spóaás 22
221 Hafnarfjörður
287.9 m2
Einbýlishús
725
691 þ.kr./m2
199.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin