Bjarkarbraut 3 Dalvík - Vel skipulögð og vel staðsett 4ra herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi með sér inngangi - stærð 109,8 m²
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, búr, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi á hæðinni. Á neðri hæðinni er sameiginlegur inngangur og sameiginlegt þvottahús.
Forstofa er með flísum á gólfi, hengi og skáp. Fyrir framan er steyptur pallur og steyptur stigi. Úr forstofu er gengið inn á gang með flísum á gólfi og þar er innfelldur skápur. Eldhús, plastlögð eldri innrétting og skemmtilegur gluggi með útsýni út á fjörðinn. Ljóst plastparket er á gólf og ágætur borðkrókur. Úr eldhúsi liggur steyptur og teppalagður stigi niður á neðri hæðina þar sem er sameiginlegt þvottahús og sameiginlegur inngangur. Búr er inn af eldhúsinu með dúk á gólfi, hillum og glugga. Stofa er með parketi á gólfi og hornglugga til suðurs og vesturs. Svefnherbergin eru þrjú, tvö með dúk á gólfi og eitt með parketi. Fataskápar eru í tveimur herbergjum. Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga.
Þvottahús er í sameign og staðsett á neðri hæðinni. Þar er lakkað gólf, skolvaskur og opnanlegir glugga.
Annað - Gluggar eru upprunalegir en gler og opnanleg fög hefur verð endurnýjað að stærstum hluta. - Hluti ofna hefur verið endurnýjaður. - Lóðin er leigulóð í eigu Dalvíkurbyggðar, 750 m² að stærð.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Upprunalegir gluggar, gler hefur verið endurnýjað fyrir þónokkrum árum
Þak
Upprunalegt, lak inn árið 2025 en eigandi lét laga það.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
51,7
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
* Kominn er tími á múrviðgerðir og málningu að utan. * Útfellingar eru í stigagangi úr eldhúsi og niður á neðri hæðina. * Skemmd er í loftaklæðningu á ganginum eftir leka frá árinu 2025, búið er að laga það og ekki orðið vart við neitt síðan þá. * Sprunga er í vegg í hjónaherberginu.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Bjarkarbraut 3 Dalvík - Vel skipulögð og vel staðsett 4ra herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi með sér inngangi - stærð 109,8 m²
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, búr, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi á hæðinni. Á neðri hæðinni er sameiginlegur inngangur og sameiginlegt þvottahús.
Forstofa er með flísum á gólfi, hengi og skáp. Fyrir framan er steyptur pallur og steyptur stigi. Úr forstofu er gengið inn á gang með flísum á gólfi og þar er innfelldur skápur. Eldhús, plastlögð eldri innrétting og skemmtilegur gluggi með útsýni út á fjörðinn. Ljóst plastparket er á gólf og ágætur borðkrókur. Úr eldhúsi liggur steyptur og teppalagður stigi niður á neðri hæðina þar sem er sameiginlegt þvottahús og sameiginlegur inngangur. Búr er inn af eldhúsinu með dúk á gólfi, hillum og glugga. Stofa er með parketi á gólfi og hornglugga til suðurs og vesturs. Svefnherbergin eru þrjú, tvö með dúk á gólfi og eitt með parketi. Fataskápar eru í tveimur herbergjum. Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga.
Þvottahús er í sameign og staðsett á neðri hæðinni. Þar er lakkað gólf, skolvaskur og opnanlegir glugga.
Annað - Gluggar eru upprunalegir en gler og opnanleg fög hefur verð endurnýjað að stærstum hluta. - Hluti ofna hefur verið endurnýjaður. - Lóðin er leigulóð í eigu Dalvíkurbyggðar, 750 m² að stærð.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.