DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Grensásvegur 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
143.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Brunabótamat
94.200.000 kr.
Byggt 2025
7. hæð · efsta
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25222221
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir Fasteignir kynna: Stórglæsileg endaíbúð á efstu hæð við Grensásveg 1f. Íbúðin afhendist fullbúin með gólfefnum. Baðherbergi eru með flísalögðum gólfum og veggjum, innfeld blöndunartæki í sturtu, sturtugler, salerni og handklæðaofn. Þvottahús er flísalagt. Innfeld Led lýsing í loftum fylgir. Einstakt útsýni til austurs. 

Stórglæsileg og vel skipulögð 4ra - 5 herbergja 143,6 fm endaíbúð á 7. hæð (efstu) með gólfsíðum gluggum mikilli lofthæð og hita í gólfum, innfeld lýsing. Glæsilegt útsýni til suðurs og austur, 25,5 fm svalir.

Skipulag íbúðarinnar er eftirfarandi: Komið er inn í stóra forstofu. Stórt og bjart opið rými sem er eldhús, borðstofa og stofa með góðri lofthæð, gengið út á stórar svalir í suðaustur. Rúmgott sjónvarps og fjölskyldurými. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf og sturta sem gengið er inní. Þvottahús innan íbúðar. Stórt hjónaherbergi með sér baðherbergi innaf og fataherbergi. Tvö barnaherbergi. Útgengt er út á svalir úr hjónaherbergi og stofunni. Fyrir framan íbúðina á gangi er sérgeymsla og einnig fylgir sérgeymsla í kjallara, merkt 0001 ásamt sameiginlegri hjólageymslu.  Afhending íbúðar getur verið við kaupsamning. 
 
Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem er mjög mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. Þar má telja læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og  grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.

Í bílakjallara eru 183 bílastæði sem eru til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum Parka sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt. Fjöldi hraðhleðslustöðva eru í bílakjallaranum og einnig standa til boða deilibílar. 

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@aldirfasteignir.is 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (9)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skerjabraut 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Skerjabraut 17
Skerjabraut 17
245 Sandgerði
145 m2
Raðhús
413
537 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Tröllahraun 51
Bílskúr
Á einni hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Tröllahraun 51
Tröllahraun 51
810 Hveragerði
132.8 m2
Parhús
413
677 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Aðalland 6
Opið hús:04. okt. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Aðalland 6
Aðalland 6
108 Reykjavík
110.9 m2
Fjölbýlishús
513
901 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Geitland 13
Opið hús:07. okt. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Geitland 13
Geitland 13
108 Reykjavík
229.4 m2
Raðhús
524
785 þ.kr./m2
180.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin